Snjallir unglingar í háska Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 4. desember 2013 11:00 Augað eftir Hallveigu Thorlacius
Bækur: Augað Hallveig Thorlacius Salka Spennusagan Augað eftir Hallveigu Thorlacius er sjálfstætt framhald unglingabókarinnar Martröð sem kom út árið 2008. Sagan segir frá Hrefnu Esmeröldu, fjórtán ára nemanda í Hagaskóla. Hún er alin upp af íslenskum hjónum sem fundu hana í tré þegar hún var þriggja ára og smygluðu henni frá Mexíkó. Síðasta bók fjallaði einmitt um leit hennar að uppruna sínum en þá kynntist hún blóðföður sínum. Hann starfaði eitt sinn fyrir mexíkósku mafíuna, en er nú á flótta undan henni. Í þessari bók fer Hrefna til Spánar að hitta hann og þar lendir hún í miklum ævintýrum. Reyndar svo umfangsmiklum að það er spurning hvort þau rúmist í 143 blaðsíðna bók. Ævintýrið hefst þegar blóðfaðir hennar hverfur. Hrefna fær þá vini sína frá Íslandi yfir til Spánar til að hjálpa henni að leysa ráðgátuna um brotthvarfið. Krakkarnir eru dregnir harkalega inn í heim hinna fullorðnu og glæpirnir sem þeir komast á snoðir um eru alls ekkert grín. Sagan er sögð í dagbókarformi og það er vel heppnað, sérstaklega í seinni hluta bókarinnar þegar spennan er orðin meiri.HöfundurinnHallveig Thorlacius ásamt barnabarni sínu, Úlfi Elíassyni.Að mörgu leyti minnir sagan á ævintýrabækur Enid Blyton, þar sem snjallir krakkar tóku málin í sínar hendur, leystu ráðgátur og skutu fullorðnum glæpamönnum ref fyrir rass. Þar voru stúlkurnar þó óframfærnar og útlendingar iðulega glæpamenn. Bókin Augað er hins vegar laus við slíkar erkitýpur, því persónusköpun er sterk og óháð kyni og kynþætti. Aðalsöguhetjan, Hrefna, er bæði hugrökk og röggsöm, auk þess sem hún er „hreinræktaður indíáni“ eins og hún orðar það sjálf. Hrefna er þroskuð en hugsanlega mætti setja spurningarmerki við hugmyndir hennar um fjölskyldur. Á einum stað segir hún til dæmis að þó hún hafi lent hjá góðu fólki þá jafnist ekkert á við alvöruforeldra.Niðurstaða: Hress og spennandi unglingabók, vel skapaðar persónur og söguþráður sem hefði þó vel mátt við fleiri blaðsíðum.
Gagnrýni Mest lesið Hafdís stígur fram vegna Kleina Lífið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Gagnrýni Heitasti keramiker landsins í fíling Tíska og hönnun Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Lífið „Fjárhagslega stór biti“ Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Varð að svara einni spurningu rétt til að fá eina milljón Lífið Fleiri fréttir Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Reimleikar í húsinu eða röskun í heilanum? Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Óperan lifir á íslensku Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Krakkaskaup fyrir fullorðna Fegurðardýrkun í Oz-landi Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Sjá meira