Vík Prjónsdóttir hönnunarteymið meikar það í New York Marín Manda skrifar 25. október 2013 15:00 Brynhildur Pálsdóttir, Þuríður Rós Sigþórsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir.
Hönnunarteymið Vík Prjónsdóttir vekur athygli í New York og er stór umfjöllun í hönnunartímariti New York Magazine, Global Design, sem kom út fyrir stuttu. Hönnunarteymið Vík Prjónsdóttir hefur verið valið af hönnunartímariti New York Magazine sem einn af áhugaverðustu hönnunarhópum í hinu alþjóðlega hönnunarsamhengi. Hönnunartímaritið, sem nefnist Global Design, er gefið út einu sinni á ári og að þessu sinni er lögð rík áhersla á unga hönnuði á heimsvísu. „Blaðamaður hafði samband við okkur og tilkynnti að það væri verið að fókusera á okkur í þessum kafla í blaðinu sem „collective designers“. Hún var þá búin að grafa okkur upp, sem er ótrúlega mikill heiður, og það er æðislegt að fá svona viðurkenningu,“ segir Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, ein hönnuðanna þriggja frá Vík Prjónsdóttur.Hönnun Víkur Prjónsdóttur hefur fengið verulega mikla athygli í Bandaríkjunum sem þær stöllur eru alsælar með.Á bak við Vík Prjónsdóttur eru þær Þuríður Rós Sigþórsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir ásamt Guðfinnu. Í tímaritinu Global Design er rætt við Þuríði Rós, sem býr í New York, og segir hún frá því hvernig nokkrir vöru-og tískuhönnuðir tóku höndum saman árið 2005 þegar mikil hnignun var á íslenskum ullarmarkaði og ákváðu að vinna verkefni með íslenskri ullarverksmiðju og búa til nýtískulegri ullarvörur.Spennandi umfjöllun um Vík Prjónsdóttur í New York Magazine.Innblásturinn fengu þær víðs vegar um Ísland og úr íslenskum sögum. Nú átta árum síðan er ullarmarkaðurinn sprunginn og Vík Prjónsdóttir er fyrirtæki í örum vexti. Guðfinna Mjöll segir Bandaríkin alltaf hafa haft mikinn áhuga á vörunum en að hinn íslenski markaður skipti þær miklu máli. Umfjöllunina segir hún koma á besta tíma þar sem Sjávarteppi Víkur eru að fara í sölu hjá bandarísku keðjunni Anthropologie, sem rekur 175 verslanir víða um heim, en sú keðja er í eigu sömu aðila og Urban Outfitters. Verslunin Geysir og verslunin SPARK á Klapparstíg eru meðal þeirra sem selja vörur frá Vík Prjónsdóttur hér á landi.
Mest lesið Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Steingleymdi að taka niður sólgleraugun Lífið „Get ekki gengið óstudd og framundan er mikil endurhæfing“ Lífið Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Már Gunnars genginn út Lífið „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Lífið Fleiri fréttir Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Níu tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Sjóðheitt fyrir snjóstorm Skein skært í sögulegum gleðikonukjól Aldrei of seint að prófa sig áfram Dannaðar dömur mættu með dramað „Nú dýrka ég að vera vaxin eins og fæðing Venusar“ Hiti í Hringekjunni Virtist hvorki geta séð né andað Sænskur og sjóðheitur undir áhrifum BDSM Kasóléttur forystusauður, ungstirni og engilfagrar kanónur „Bíður bara inni í skáp eftir brúðkaupinu“ Betra sem hárbindi en tagl í Bríeti Léti aldrei sjá sig í ökklasokkum Gelluorkan í hæstu hæðum hjá Ginu Heitir pabbar í hlaupaklúbbi Skilnaðar-toppur í París Fann ástina í örlagaríkum kjól Sjá meira