Út með ruslið Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 23. september 2013 10:15 Ég fékk ökuréttindi þegar ég var óþroskaður unglingur. Ég þaut um bæinn á Huppu, eldgömlum og skærrauðum Ford Escort sem ég hafði afnot af, og naut þess að vera kominn í fullorðinna manna tölu. Bíllinn sá var ágætur en alltaf fullur af rusli. Sem er ótrúlegt vegna þess að ég vílaði það ekki fyrir mér að henda rusli út um gluggann á ferð. Drykkjarumbúðir, nammibréf og plastpokar, mér var alveg sama. Þvílík óvirðing og sóðaskapur, en sem betur fer eltist þetta fljótt af mér og í dag hugsa ég til þessarar hegðunar með hryllingi. Það er merki um góða andlega líðan að vilja hafa hreint í kringum sig. Þegar mér líður vel er íbúðin mín ilmandi hrein og æðisleg. En þegar vanlíðan ber að garði safnast óhreint leirtau upp í eldhúsvaskinum og hreini þvotturinn liggur ósamanbrotinn á stól í marga daga. Ofan á ruslafötuna safnast haugur sem gerir það að verkum að erfitt er að binda fyrir pokann loksins þegar ég fer út með ruslið. En ég hendi því ekki á götuna þó mér líði illa. Fullorðnir einstaklingar vita betur en að dreifa rusli um allt, ekki satt? Ekki allir. Þegar við fáum að byggja kirkjur í múslimalöndum skulum við leyfa múslimum að reisa Moskvur hér á landi. Og var trúðurinn Jón „Gnarr“ ekki skírður Jón Gunnar? Má sem sagt ekki kalla hann það? Annars styð ég Gylfa Ægisson hundrað prósent. Margir af mínum bestu vinum eru öfuguggar en svona klámsýningar með tilheyrandi typpasleikjóum eru ólíðandi. Er enginn að hugsa um blessuð börnin? Talandi um börn. Þeir sem vilja að flugvöllurinn fari hljóta að vilja að börn deyi. En það er svo sem í takt við innræti þessara lattelepjandi lopatrefla sem hafa aldrei farið út fyrir 101. Þeir hljóta að hata börn á landsbyggðinni meira en talibaninn Hildur Lilliendahl hatar karlmenn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Haukur Viðar Alfreðsson Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun