Áhrif víða að á sterkri plötu Trausti Júlíusson skrifar 4. janúar 2013 08:00 Samúel J. Samúelsson
Tónlist. Samúel Jón Samúelsson Big Band. 4 hliðar. Eigin útgáfa Samúel Jón Samúelsson er einn af duglegri tónlistarmönnum landsins. Á síðastu tveimur árum hefur hann útsett og spilað á básúnu með fjölmörum hljómsveitum og listamönnum, til dæmis Hjálmum, Moses Hightower, Stórsveit Reykjavíkur, Sigurði Guðmundssyni og Memfismafíunni, Páli Óskari og Ásgeiri Trausta. Sammi heldur líka úti eigin átján manna stórsveit og 4 hliðar er fjórða platan hennar. Hún er tvöföld og hefur að geyma tólf lög. Umbúðirnar utan um 4 hliðar eru mjög flottar. Diskarnir koma í tveimur pappaumslögum sem eru hönnuð eins og vínylplötuumslög, með innra hulstri (nærhaldi eins og það var gjarnan kallað hér áður fyrr). Það eru í raun fjórar framhliðar á plötunni, sem passar við nafn plötunnar. Hönnunin vísar mjög sterkt í plötuumslög með tónlist sem tónlist Samma og félaga sækir áhrif til; afróbít, fönk, latín, djass... Nafnið 4 hliðar vísar til hliðanna fjögurra sem verða á vínylútgáfu plötunnar en líka til fjögurra hliða á tónlist Samma og hljómsveitarinnar. Það er ekki skýr munur á hliðunum fjórum en samt er fjölbreytnin töluverð og engin tilviljun hvernig raðað hefur verið á plöturnar. Hlið A hefst á frábæru lagi, Ethiopian, svo kemur lagið Afróbít sem var unnið með Tony Allen og loks Ordeo ad Chao sem er sömuleiðis frábært lag með flottum gítarleik. Afróbítið er nokkuð ráðandi á plötunni, en djassáhrifin eru líka sterk (enda djassinn eitt af hráefnunum í afróbítinu!). Nokkur lög skera sig úr, t.d. hið hæggenga Dubnotic þar sem orgelið er einkennandi, lokalagið Peace sem er hreinræktað djasslag og hið ellefu mínútna Felafal sem er skemmtilega kaflaskipt, byrjar á dæmigerðu afrógrúvi en brotnar upp og endar á kafla þar sem bítið hverfur og saxófónarnir syngja eins og skipsflautur. Sammi hefur farið vaxandi sem lagasmiður og hljómsveitarstjóri og tónlistin á nýju plötunni er sterkari en á síðustu plötu, Helvítis Fokking Funk, sem kom út fyrir tveimur árum. Fjölbreytnin er meiri og hljómurinn betri. Á heildina litið er 4 hliðar frábær plata sem á eftir að styrkja Samma í sessi og vonandi stækka hlustendahópinn. Niðurstaða: Flottur kokkteill af afróbíti, fönki og djassi frá Stórsveit Samma.
Gagnrýni Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira