Boðið að hætta við þátttöku á matarsöluplani og fá endurgreitt Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 15. ágúst 2013 12:59 Frá Menningarnótt í fyrra. mynd/daníel
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur boðið þeim sem greitt hafa fyrir pláss á matarsöluplani á Geirsgötu á Menningarnótt að fá endurgreiðslu, vilji þeir hætta við þátttöku. Í bréfi sem Björn Ingvarsson hjá umhverfis- og skipulagssviði kvittar undir er endurgreiðslunni lofað „á meira en hefðbundnum kerfishraða“, en boðið kemur til vegna kvörtunar sem borginni barst frá Regnbogabörnum vegna Hinsegin daga. Þar var gjaldið sagt of hátt og ekki í nokkru samræmi við útlagðan kostnað borgarinnar við aðstöðuna. Að sögn Björns hefur þó enginn nýtt sér boðið, heldur þvert á móti hafi tveir bæst við þá fjóra sem höfðu þegar greitt gjaldið. Aðspurður hvort eitthvað sé til í ásökunum um að gjaldtaka borgarinnar sé langt yfir kostnaði segir Björn að málið sé í skoðun. „Í raun á bara eftir að taka saman allan kostnað. Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir öllu sem þarna er á bak við. Það þarf að loka umferð um planið, útvega rafmagn, þrífa og ýmislegt annað,“ segir Björn, en gjald fyrir matarsölupláss er það sama á Menningarnótt og það var á Hinsegin dögum: 100 þúsund krónur fyrir pláss frá 9:30 að morgni til 4 um nóttina.
Hinsegin Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira