Leiðin að nýju og betra lífi 13. febrúar 2012 12:00 Jóhanna Vilhjálmsdóttir. „
Detox-meðferðin er alveg einstök og þeir eru ófáir einstaklingarnir sem ég hef fylgst með öðlast nýtt líf í gegnum hana. Þarna stíga margir nefnilega fyrstu skrefin og fá hvatningu og þekkingu til að halda áfram leiðina til heilsueflingar. Sjálf hef ég farið í þessa meðferð og það var í raun hún sem sparkaði mér almennilega af stað til breytingar á mínum lífsstíl," segir Jóhanna Vilhjálmsdóttir sem bregður sér í hlutverk fararstjóra á tveggja vikna detox-námskeiði á hótel Elf nálægt Gdansk í Póllandi um páskana. Námskeiðið hefst 31. mars. Að sögn Jóhönnu verða þar í boði detox-námskeið og önnur námskeið sem henta eldra fólki eða þeim sem eru að jafna sig eftir veikindi. „Fjölbreytni verður í fyrirrúmi og persónuleg ráðgjöf höfð að leiðarljósi," upplýsir hún og getur þess að á hótelinu sé flott spa-aðstaða, sundlaug, heitir pottar, gufuböð og klefi með infrarauðu ljósi. „Nudd og snyrtiþjónusta öll er á gjafverði og svo förum við í útsýnisferðir til Gdansk og í nágrenni hótelsins sem er í þjóðgarði við vatn á dásamlegum stað." Jóhanna mun vinna náið með Dr. Agnesku Lemanzic lækni, sem margir Íslendingar ættu að þekkja frá meðferðum Jónínu Ben á sama hóteli. „Við Jónína erum vinkonur og hún ætlar að munstra mig inn í þetta nýja hlutverk í Póllandi" segir Jóhanna brosandi og segist hlakka mikið til ferðarinnar, enda mikil áhugamanneskja um hvernig hægt sé að fyrirbyggja menningarsjúkóma. „Mín ástríða snýst um að fræða fólk um hvað það getur raunverulega haft mikil áhrif á heilbrigði sitt og líðan," segir hún og nefnir sem dæmi að hún komi til með að halda fyrirlestra um áhrif mataræðis á krónískar bólgur í líkamanum. „Ég mun fjalla um hvernig visst mataræði getur ýtt undir bólgur á meðan annað hjálpar okkur að vinna gegn þeim. En rannsóknir leiða æ betur í ljós að bólgur eru undirliggjandi þáttur í fjölda sjúkdóma," bendir hún á og bætir við að í boði verði fjöldi annarra fyrirlestra sem geti breytt lífi fólks til lengri tíma.Á hótelinu er fyrsta flokks spa-aðstaða, sundlaug, heitir pottar, gufuböð og klefi með infrarauðu ljósi.Bókið flug til Gdansk 31. mars og heim 14. og 15. apríl.Rúta fer frá flugvellinum á hótelið í Gdansk kl. 20.00 um kvöldið. Þeim, sem að lenda á öðrum tíma, er bent á að hafa samband við Jóhönnu og hún lætur sækja þá.Skráning og upplýsingar eru hjá johanna.vilhjalmsdottir@gmail.com eða í síma 899-1130.Verð er 160.000 kr. Innfalið í því er: tvær vikur hótel, fullt fæði, einkaráðgjöf hjá lækni og sérfræðingi, hreyfing, kvöldvökur og skemmtidagskrá.Iceland Express býður sértilboð til Kaupmannahafnar fyrir þá sem ætla á detox-námskeið í Póllandi.Hægt er að bóka sig áfram til Póllands, til dæmis með SAS eða Wizz Air. Sjá sas.com og wizz.com.
Heilsa Mest lesið Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Viðskipti innlent „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Viðskipti innlent Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Viðskipti innlent Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum Neytendur Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Atvinnulíf Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Viðskipti innlent Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira