Þegar Flóki kom út úr skápnum Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 29. nóvember 2012 12:53
María, sögukona Undantekningarinnar, upplifir fremur óvenjulegt gamlárskvöld í upphafi bókarinnar. Flóki, eiginmaður hennar til ellefu ára, velur þetta kvöld til þess að koma út úr skápnum og hann tilkynnir konu sinni jafnframt að hann sé ástfanginn af samstarfsmanni sínum og ætli sér að flytja til hans. Svo er hann á bak og burt. Eins og gefur að skilja er þetta Maríu töluvert áfall. Hún situr ein eftir með tvíbura á þriðja ári og glímir við ótal spurningar á borð við: "Hvað segir það um mig sem manneskju að ég skyldi ekki hafa tekið eftir neinu?" Flókarnir tveir (já, ástmaðurinn heitir sama nafni) eru sérfræðingar í óreiðukenningunni, en snögg netleit segir stærðfræðiblindingjum að sú kenning sé "formleg aðferð sem gerir stærðfræðingum kleift að skilja eðli hins tilviljanakennda, duttlungafulla eða ófyrirsjáanlega". Í þessari sögu þarf María einmitt að takast á við óreiðuna sem fylgir duttlungum örlaganna og hún reynir að skilja eðli hennar og endurskoða líf sitt út frá þessari óvæntu vitneskju um eiginmanninn. Og eins og ekki sé nóg lagt á söguhetjuna, þá skýtur blóðfaðir hennar upp kollinum í fyrsta sinn og á erindi við dóttur sína. Auk Maríu og hennar nánustu er Perla, dvergvaxin kona sem býr í kjallaranum hjá henni, ein af aðalsöguhetjum Undantekningarinnar. Perla er bæði eftirminnileg og skemmtileg persóna. Eins og stendur á útidyrunum hjá henni þá er hún "sálgreinir PhD, fjölskyldu- og hjónabandsráðgjafi og rithöfundur". Perla reynist Maríu ráðagóð vinkona og hjálparhella í erfiðum aðstæðum. Vangaveltur um skáldskaparlistina eru áberandi í bókinni, ekki síst í samræðum þeirra Perlu og Maríu, en Perla skrifar glæpasögur fyrir frægan glæpasagnahöfund, er "ghostwriter" þó að hún sé að reyna að losa sig undan þeirri kvöð. María verður að aðaláhugamáli hennar í staðinn. Ungur fuglaáhugamaður í næsta húsi hefur einnig mikið dálæti á Maríu, enda á hún að vera sláandi fögur. Svo fögur að það slær hreinlega þögn á fólk þegar hún gengur inn á veitingahús og hún er líka góð og göfug manneskja sem hefur gert það að ævistarfi að aðstoða fórnarlömb stríðsátaka. Texti Auðar Övu er bæði ljóðrænn og fallegur. Persónurnar eru áhugaverðar sem og framvinda sögunnar og lesandi fær einlægan áhuga á því að vita meira um fortíð Maríu og Flóka og það hvernig unnið er úr málunum. Nokkur kunnugleg stef úr fyrri verkum höfundarins skjóta hér líka upp kollinum en nú ber að vara sig á því að segja ekki of mikið. Niðurstaða: Fallega skrifuð, áhugaverð og skemmtileg bók sem fyllsta ástæða er til að mæla með.
Gagnrýni Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira