Risaurriði veiddist í Grænavatni 3. ágúst 2012 21:27 Urriðinn mældist 83 sentímetra langur og 50 sentímetrar að ummáli. Mynd / Bryndís Magnúsdóttir
Átján punda urriði veiddist í Grænavatni í fyrradag. Á vefsíðu Veiðivatna segir að sennilega sé þetta stærsti urriði sem veiðst hafi á stöng í vötnunum. "Kunnugir telja að margir svona stórir leynist í Grænavatni svo ef til vill eiga fleiri álíka eða stærri eftir að koma þar á land," segir á síðu Veiðivatna. Fréttablað Suðurlands, dfs.is, segir frá því að veiðimaðurinn slyngi sem náði að krækja í þennan risafisk heiti Haukur Böðvarsson. Þar kemur ennfremur fram að fiskurinn hafi mælst 83 sentímetra langur og 50 sentímetrar að ummáli. Fiskurinn vó 8,2 kíló. Á síðu Veiðivatna segir að urriðinn sé 16,4 pund og er þá átt við svokölluð íslensk pund en þá er kílóafjöldinn margfaldaður með tveimur. Fiskurinn var hins vegar 18 ensk pund en sú þyngd er fundinn út með því að margfalda kílóafjöldann með 2,2. Heildarveiðin í Veiðivötnum nálgast nú 15 þúsund fiska og er meðaþyngdin ríflega 2 pund. trausti@frettabladid.isBryndís Magnúsdóttir
Stangveiði Mest lesið Síðasta Fræðslukvöld SVFR í vetur á fimmtudaginn Veiði Góð fluga í vatnsleysinu Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Nóg af laxi en vantar bara vatn Veiði Gæsaveiðin gengur vel Veiði Einföld og öflug straumfluga Veiði 100 sm urriði úr Þingvallavatni Veiði Fiskvegur skal gerður fyrir ísaldarurriðann Veiði Öflug fluga í köld vötn að vori Veiði Hafa fengið 1,4 milljarð króna í arð Veiði