Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi 5. júlí 2012 09:57
Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi. Verkföll hafa truflað olíuframleiðslu Norðmanna að undanförnu og segir talsmaður OLF í samtali við Verdens Gang að samtökin hafi ekki séð neina leið nema verkbann í stöðunni. Kröfur þeirra verkalýðsfélaga sem eru í verkfalli séu þess eðlis að ómögulegt sé fyrir OLF að mæta þeim. Verkfallið hefur nú staðið í 12 daga og það hefur kostað meðlimi OLF um 2,3 milljarða norskra kr. eða um 50 milljarða kr. hingað til. Með verkbanninu verða 6.500 starfsmenn í viðbót við þá sem eru í verkfalli útilokaðir frá vinnu sinni. Fyrir Statoil þýðir verkbannið að framleiðsla á 1,2 milljónum tunna á dag fellur niður og talið er að kostnaður Statoil vegna þess muni nema 520 milljónum norskra kr. daglega eða um 11 milljörðum kr.
Mest lesið Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Atvinnulíf Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira