Þjálfari Hoffenheim: Ég reikna með því að fá Gylfa aftur í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2012 17:00 Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Gylfi Þór Sigurðsson hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni eftir áramót og í framhaldinu hafa spekingar og fjölmiðlamenn verið að velta því fyrir sér að hann fari í stærra lið í ensku úrvalsdeildinni á næstu tímabili. Það er samt þýska liðið Hoffenheim sem ræður örlögum íslenska landsliðsmannsins því Swansea er bara með hann í láni frá Hoffenheim. Gylfi hefur verið orðaður við stórlið eins og Manchester United og Arsenal en Ernst Tanner, íþróttastjóri Hoffenheim, kannast ekki við neinar fyrirspurnir um íslenska landsliðsmanninn. „Það þarf einhver að hafa samband við okkur og ná einnig samkomulagi við leikmanninn sjálfan en við höfum ekki fengið nein tilboð," sagði Ernst Tanner og þjálfarinn Markus Babbel býst við að sjá Gylfa aftur þegar undirbúningstímabilið hefst. „Hann er ennþá með samning við Hoffenheim og ég reikna með að sjá hann aftur hjá okkur í sumar," sagði Markus Babbel. Gylfi hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú í fyrstu 9 leikjum sínum með Swansea en fékk aðeins að spila sjö leiki með Hoffenheim fyrir áramót.
Þýski boltinn Mest lesið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Sjá meira