Persónulegar gjafir 11. nóvember 2011 11:00 Örn Valdimarsson og Þór Þorsteinsson eigendur Prentlausna sem bjóða sniðugar lausnir í úrvinnslu jólakorta, dagatala og albúma.Mynd/valli
Prentlausnir þjónusta einstaklinga og fyrirtæki, stór og smá með stafræna prentun og frágang á prentgripum. Að sögn Þórs Þorsteinssonar, annars eigenda Prentlausna, nýtur forrit á vefsíðu fyrirtækisins mikilla vinsælda um þessar mundir en það gerir notendum kleift að búa til eigin jólakort, dagatöl og myndaalbúm með tiltölulega lítilli fyrirhöfn. „Forritið er amerískt og kallast Digilaps. Fyrir utan að vera svo notendavænt að afi gamli og amma geta nýtt sér það leikandi létt, er búið að þýða forritið á íslensku og hægt að hlaða því beint á tölvu notenda sem veldur því að vinnslan er hröð, miklu hraðari en þegar fólki gefst kostur að nota svona forrit á netinu,“ bendir Þór á. þegar búið að er sækja forritið á heimasíðu Prentlausna á slóðina prentlausnir.is segir Þór þrjá fyrrnefnda valkosti bjóðast. „Sá fyrsti er að gera jólakort og hægt að skreyta það með eins mörgum myndum og mann langar til, bæði inn í og á bakinu,“ segir hann og getur þess að valið standi milli tveggja stærða, A5 og A6. „Kortið er svo hægt að fá með broti ef maður vill og umslag fylgir alltaf með.“ Annar valmöguleiki er að setja saman dagatal í forritinu. „Þar er líka hægt að hafa frjálsar hendur með fjölda mynda og jafnvel setja eina mynd í bakgrunn,“ segir hann. „Svo gefst sá kostur að setja inn á einum stað í forritinu nöfn einstaklinga, afmælisdaga og myndir af viðkomandi og þá birtist allt saman sjálfkrafa inni í dagatalinu.“ Loks nefnir Þór albúmin til sögunnar. „Sem geta verið eins myndskreytt og fólk vill, án eða með texta sem það fyllir sjálft inn og farið upp í allt að 200 blaðsíður í fjórum stærðum: A4 langsniði, A4 standandi, 28 x 28 eða 21 x 21 sentimetra,“ segir hann og getur þess að rétt eins og í fyrrnefndum tilvikum þurfi að vista endanlega útkomu og senda rafrænt til Prentlausna sem annist allan frágang þegar greitt hefur verið með greiðslukorti. „Eftir það gengur allt mjög hratt fyrir sig, sérstaklega þegar um minni upplög er að ræða og svo gefum við fólki kost á að sækja pakkann eða fá hann sendan til sín.“ Albúm.Jólakort.Dagatöl.
Sérblöð Mest lesið Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Viðskipti innlent Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Viðskipti innlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Atvinnulíf Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Viðskipti erlent Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Sjá meira