Guðrún Þóra: Núna er bara skemmtileg vika framundan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2011 22:34 Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir. Mynd/Vilhelm „
Það er eitt það stærsta sem maður gerir yfir veturinn það er að komast í Höllina," sagði Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir sem skoraði fimm mörk þegar Framstelpur tryggðu sér sæti í bikarúrslitum annað árið í röð með 32-25 sigri á HK í kvöld. „Við vorum eitthvað höktandi þarna í seinni hálfleiknum en ég veit ekki alveg hvað það var. Við hleyptum þeim aðeins of mikið inn í leikinn," sagði Guðrún Þóra en HK minnkaði muninn í fjögur mörk í seinni hálfleik eftir að Framliðið var tíu mörkum yfir í hálfleik. „Við vorum sannfærðar um það í hálfleik að þetta væri ekki búið því þetta HK-lið er hörkulið. Þær sýndu það með því að koma til baka. Við ætluðum okkur ekkert að gefa eftir en svona er þetta oft í handbolta," sagði Guðrún Þóra. Einar Jónsson, þjálfari Fram, tók leikhlé í stöðunni 23-19 og Guðrún Þóra skoraði næstu þrjú mörk leiksins. Fram vann á endanum fyrstu sex mínúturnar eftir leikhléið 6-0 og gerðu út um leikinn. „Einar talaði ekkert sérstaklega við mig í leikhléinu en ég tók bara til mín það sem hann var að segja. Það var ekkert annað í stöðunni að rífa okkur aftur upp því við ætluðum í Höllina. Einar veit líka hvað hann er að segja," sagði Guðrún Þóra. „Það verður skemmtilegt að mæta Val og ég er viss um að þetta verður sannkallaður úrslitaleikur. Núna er bara skemmtileg vika framundan," sagði Guðrún Þóra að lokum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira