Lagerbäck: Get ekki valið alla leikmenn í fyrsta leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2011 10:00 Lars Lagerbäck Mynd/Vilhelm
Lars Lagerbäck var í stuttu viðtali við heimasíðu KSÍ í dag þar sem var farið yfir tvo fyrstu landsleikina undir hans stjórn. KSÍ tilkynnti í dag að íslenska karlalandsliðið mun spila við Japan 24. febrúar næstkomandi en áður hafði verið gefið út að liðið mætir Svartfjallalandi fimm dögum síðar. „Þetta verður auðvitað fyrsti leikurinn minn með liðið og þó svo að ég geti ekki valið alla leikmenn sem ég myndi vilja í þennan leik, þar sem þetta er ekki alþjóðlegur leikdagur, þá er frábært að fá þennan leik og ég er mjög ánægður," sagði Lars Lagerbäck inn á heimasíðu KSÍ. „Væntanlega verða breytingar á hópnum fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi og ég vonast til að geta skoðað sem flesta leikmenn. Í raun hentar þetta mjög vel, því ég fæ þarna tækifæri til að skoða stóran hluta þeirra leikmanna sem mér stendur til boða að velja í framhaldinu. Ég er mjög ánægður með að fá þessa tvo leiki svona snemma, þetta er mjög jákvætt og KSÍ hefur staðið vel að málum í þessari vinnu," sagði Lagerbäck „Þarna mun mér gefast tækifæri til að hitta leikmennina, fylgjast með þeim og ræða við þá, sjá þá á æfingum og í leikjum, sjá hvernig þeir eru í hóp og hvernig skapgerð menn hafa, hvaða eiginleika. Skapgerð og liðsheild er eitthvað sem ég legg mikið upp úr. Það verður spennandi að sjá hvernig leikmennirnir bregðast við mínum hugmyndum um leikskipulag og leikaðferð. Æfingarnar munu snúast mikið um taktík og þessir tveir leikir gefa okkur frábært tækifæri til að skoða þessi atriði," sagði Lagerbäck.
Íslenski boltinn Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira