Fréttaskýring: Allt á suðupunkti í Suður-Evrópu Magnús Halldórsson skrifar 22. nóvember 2011 23:03 Mario Draghi, nýr seðlabankastjóri Evrópu, hefur krafist þess að þegar í stað verði gripið til aðgerða vegna skuldavanda ríkja og banka í Evrópu.
Staða efnahagsmála í nær öllum ríkjum í Suður-Evrópu er fjárfestum mikið áhyggjuefni í augnablikinu, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC og Wall Street Journal í dag. Þetta hefur enduspeglast í sífellt hækkandi skuldatryggingaálagi á tíu ára ríkisskuldabréf ríkjanna. Álagið á undanförnum vikum hefur hækkað snarlega og er nú á bilinu 5 til rúmlega 7 prósent. Sveiflur á hlutabréfamörkuðum þykja einnig benda til þess að fjárfestar séu að halda að sér höndum, og bíði þess aðgerðir fari að hafa áhrif.Pólitísk óvissa bætist við Ríkin sem um ræðir eru einkum Grikkland, Ítalía, Portúgal og Spánn. Í öllum þessum ríkjum er álagið það hátt að nær útilokað er talið að löndin geti endurfjármagnað skuldir sínar á markaði. Þá hefur pólitískur óróleiki ekki heldur verið til þess fallinn að róa fjárfesta. Í þremur löndum af þessum fjórum, Grikklandi, Ítalíu og Spáni, hefur nú verið skipt um pólitíska forystu frá því sem var fyrir tæpum mánuði. Þetta hefur ekki bætt ástandið eða dregið úr vantrausti. Þvert á móti.Beðið eftir aðgerðum „Eftir hverju er verið að bíða?" spurði Mario Draghi, nýr seðlabankastjóri Evrópu, á bankamálaráðstefnu í vikunni, og vitnaði til þess að nauðsynlegt væri fyrir Evrópusambandið að virkja björgunarsjóð sinn og grípa til aðgerða. Staða mála nú þyldi enga bið. En af hverju er ekki búið að grípa til aðgerða sem fjárfestar hafa trú á að skipti máli? Svarið er, að björgunarsjóður ESB hefur ekki verið fjármagnaður enn að fullu og þá hefur sjálf beiting sjóðsins ekki verið endanlega útfærð. Það sem þó hefur verið samþykkt er að stækka sjóðinn úr 440 milljörðum evra í 1.000 milljarða. Klaus Regling, framkvæmdastjóri björgunarsjóðsins, hefur þegar fundað með æðstu embættismönnum Kína og Japan með það fyrir augum að þau ríki kaupi um 10% af skuldabréfum sem sjóðurinn gefur út, svo hann geti gripið til aðgerða. Samkvæmt fréttum Wall Street Journal hafa svörin þaðan verið á þá leið að ekki liggi nógu skýrt fyrir hvernig sjóðurinn verður byggður upp og notaður, svo til þessara gríðarlega umsvifamiklu kaupa geti komið. Meiri líkur en minni eru þó taldar á því að samkomulag náist um þessi mál og sjóðurinn verði virkjaður og notaður til aðstoðar þeim þjóðum sem glíma við alvarlegasta skuldavandann.Aðgerðir í hverju ríki nauðsynlegarMikill þrýstingur eru nú á stjórnvöld í ríkjum Suður-Evrópu að grípa til aðgerða í ríkisfjármálum sem fjárfestar fá merki um að séu að virka. Þau merki hafa ekki sést enn. Stephanie Flanders, ritstjóri efnahagsmála hjá BBC, segir að óttinn sé helst við það að fjárfestar hafi ekki þolinmæði til þess að bíða eftir því að aðgerðir hafi áhrif. Þá gæti skapast ástand sem enginn hefði neina stjórn á, eins og Flanders sagði í pistli sem hún skrifaði á bloggsíðu sína nýlega. Sérstaklega er horft til þess að Ítalir grípi til aðgerða sem tryggi mögulega á því að landið geti sótt sér fjármagn eitt og óstutt. Álagið á ríkisskuldabréf landsins hefur verið um og yfir 7% sem þýðir í reynd að allt er lokað þegar kemur að lánum. Það sama á við um banka landsins, sem eru taldir vera með veika innviði. Ítalía er þriðja stærsta hagkerfi Evrópu á eftir því franska og þýska. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna, með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, fremsta í flokki eru þó vongóðir um að staðan batni á næstunni eftir því sem aðgerðir landanna fara að hafa áhrif á stöðu mála. En það mun taka tíma.
Mest lesið Öll heimilisverk skemmtileg nema eitt Atvinnulíf Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Viðskipti erlent Íbúar vilja fella úr gildi starfsleyfi Hygge vegna mengunar Viðskipti innlent Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Viðskipti innlent Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Viðskipti innlent Fundinum mikilvæga frestað Viðskipti innlent Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Viðskipti innlent Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Atvinnulíf Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Samstarf Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Nvidia metið á 615 billjónir króna Umfangsmiklar uppsagnir hjá Amazon Framkvæmdastjórnin beinir spjótunum að Meta og TikTok Kæra FIFA fyrir miðasölubrask fyrir HM á næsta ári Þrír Kaupþingsstjórar sektaðir í Lúxemborg eftir fimmtán ára málaferli Stjórn Warner Bros. segir félagið til sölu Svona lögðu Kínverjar framtíðina undir sig Snapchat og Duolingo í basli vegna bilunar hjá Amazon Smáríki græða á tá og fingri á þjóðarlénum í lénaleikjum Skoða hvort miðasölubrask FIFA sé ólögleg veðmálastarfsemi Paramount ber víurnar í Warner Bros Kínverjar hóta frekari hefndum, standi Trump við tollana Deila Nóbelnum fyrir að varpa ljósi á tengsl nýsköpunar og hagvaxtar Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Rafmyntir hrynja í verði eftir tollahótanir Herða hreðjatakið á birgðakeðjum Vesturlanda Virði gulls í methæðum Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Strava stefnir Garmin AMD upp um fjórðung eftir risasamning við OpenAI Sjá meira