Breivik ósakhæfur 29. nóvember 2011 11:22 Breivik er ósakhæfur að mati geðlækna, dómari tekur svo ákvörðun um hvort að það mat læknanna sé rétt. Ef hann gerir það, verður Brevik vistaður á geðdeild.
Fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivk hefur verið metinn ósakhæfur af norskum réttargeðlæknum. Að öllum líkindum verður hann vistaður á geðdeild. Dómari við héraðsdóm í Osló sagði frá þessum niðurstöðum geðlæknanna fyrr í morgun, eftir að hafa fengið í hendur 243 síðna skýrslu þeirra um mat á sakhæfi Breivik. Norska blaðið Verdens Gang greinir frá því að geðlæknarnir komast að þeirri niðurstöðu að Breivik sé veikur á geði og leggja til að hann verði vistaður á geðdeild þar sem hann fær viðeigandi meðferð. Breivik hefur játað að hafa orðið sjötíu og sjö manns að bana í Útey og í miðbæ Oslóar í júlímánuði. Réttargeðlæknarnir áttu 13 viðtöl við Breivik, en auk þess byggir mat þeirra á um 130 klukkustunda yfirheyrslu lögreglu yfir honum. Þegar geðlæknarnir skiluðu skýrslunni til dómara í morgun sögðu þeir ekki vera í neinum vafa um geðveilu Breivik. Ákveði dómari að hann skuli vistaður á geðdeild, fremur en í fangelsi, verður hann þar að líkindum um óákveðinn tíma. Á vef norska ríkisútvarpsins segir að sterk hefð sé fyrir því í Noregi að dómarar fari eftir mati geðlækna í málum sem þessu.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Sjá meira