Frábært afrek hjá Ólafi Birni - keppir á PGA-móti í næstu viku Stefán Árni Pálsson skrifar 14. ágúst 2011 19:00 Ólafur Björn Loftsson. Mynd. / GVA
Ólafur Björn Loftsson vann ótrúlegt afrek í dag þegar hann vann Cardinal-áhugamannamótið í golfi sem fór fram í Norður-Karólínu. Með sigrinum tryggði hann sér þátttökurétt á Wyndham Championship-mótinu sem fram fer í næstu viku og er á PGA-mótaröðinni. Viðtal blaðamanns Vísis við Ólaf Björn að mótinu loknu má nálgast hér. Ólafur lék lokahringinn á 65 höggum eða 5 undir pari og lék samtals á 11 höggum undir pari, en Will Collins varð í öðru sæti fjórum höggum á eftir Ólafi. Ólafur var greinilega einbeittur fyrir lokahringinn en hann fékk þrjá fugla á fyrstu fjórum holum dagsins og gaf þar með tóninn. Alls tóku 80 kylfingar þátt á mótinu og er þetta frábær árangur hjá Íslendingnum. Ólafur verður fyrsti Íslendingurinn til að leika á PGA-mótaröðinni sem er magnaður árangur.
Golf Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira