Breivik hringdi til að gefa sig fram - samtölin í heild sinni 18. ágúst 2011 16:22 Breivik hringdi inn hálftíma áður en lögreglan mætti á svæðið.
Norska lögreglan birti í dag símtal Anders Behring Breivik við neyðarlínuna í Noregi þann 22. júlí síðastliðinn. Breivik hringdi með það í huga að gefa sig fram, en rúmum hálftíma áður hafði lögreglan í Noregi fengið tilkynningu um skotárás í Útey. Breivik reyndi tíu sinnum að hringja en náði aðeins sambandi tvisvar. Fyrra símtalið barst hálftíma áður en lögreglan kom á svæðið. Það hljóðaði svona:L: Neyðarlínan ABB: Já góðan dag. Ég heiti Anders Behring Breivik, foringi í norsku andkommúnísku andspyrnuhreyfingunni.L: Já. ABB: Ég er á Útey í augnablikinu. Ég vil gefa mig fram.L: Allt í lagi. Úr hvaða númeri hringirðu? ABB: Ég hringi úr farsíma.L: Úr þínum farsíma? ABB: Já. Þetta er ekki minn sími, heldur annar ...L: Annar, hvað heitir þú aftur? Halló ... Halló ... (Breivik skellir á) Síðara símtalið barst lögreglunni 25 mínútum síðar. Það hljóðaði svo:L: Neyðarlínan, lögreglan. ABB: Góðan dag, ég heiti Anders Behring Breivik.L: Já, halló. AAB: Ég er foringi í norsku andspyrnuhreyfingunni.L: Já, sæll. AAB: Getur þú gefið mér samband við aðgerðarstjóra sérsveitarinnar?L: Já ... Hvaðan hringirðu og um hvað snýst þetta? AAB: Ég er á Útey.L: Þú ert á Útey, já. AAB: Ég hef lokið verkefni mínu, svo ég vil ... gefa mig fram.L: Þú vilt gefa þig fram, já. AAB: JáL: Hvað sagðistu heita? AAB: Anders Behring BreivikL: Og þú ert foringi í ... AAB: Samtökin heita Musterisriddarar Evrópu en við höfum stofnað norsku andkommúnísku andspyrnuhreyfinguna gegn íslamíseringu í Evrópu og Noregi.L: Já AAB: Við vorum rétt að framkvæma verkefni á vegum Musterisriddaranna.L: Já ... AAB: Evrópa og Noregur.L: Já ... AAB: Og þar sem verkefninu er lokið er ... kominn tími til að gefa sig fram við sérsveitina.L: Þú vilt gefa þig fram við sérsveitina? AAB: Geturðu ... geturðu gefið mér samband við aðgerðastjóra sérsveitarinnar?L: Já, þú ert nú þegar að tala við mann sem hefur vissa yfirumsjón... AAB: Allt í lagi, þá finnur þú bara útúr þessu og svo hringirðu aftur í þetta símanúmer, er það ekki?L: Hmmm ... en í hvaða símanúmer? AAB: Fínt er, blessL: Ég er ekki með neitt símanúmer! Halló! (Breivik skellir á) Mínútu síðar kom lögreglan á svæðið og tók Breivik fastan.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira