Gylfi tekjuhæstur íslenskra íþróttamanna í Noregi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. október 2010 08:00 Gylfi Einarsson í leik með Brann. Nordic Photos / AFP
Gylfi Einarsson var tekjuhæsti íslenski íþróttamaðurinn í Noregi á árinu 2009 samkvæmt lauslegri úttekt Vísis. Hægt er að nálgast upplýsingur um tekjur allra íbúa Noregs fyrir árið 2009 á norskum vefsíðum, til að mynda hér. Fjölmargir íslenskir knattspyrnu- og handboltamenn hafa spilað í Noregi um árabil og tók Vísir saman þá helstu sem spiluðu þar í fyrra. Gylfi Einarsson trónir þar á toppnum með tæpar 4,5 milljónir króna í mánaðartekjur. Hann er á sínu síðasta tímabili með Brann og mun ganga í raðir Fylkis þegar að tímabilinu lýkur þar. Ólafur Örn Bjarnason, sem gekk í raðir Grindavíkur í sumar þar sem hann er nú spilandi þjálfari, kemur næstur á listanum með rúmar 3,7 milljónir í mánaðartekjur. Einn þeirra sem hefur verið tekjuhæstur íslenskra knattspyrnumanna í Noregi, Veigar Páll Gunnarsson, er ekki á listanum þar sem hann spilaði í Frakklandi í fyrra. Árið 2008 var hann með tæplega fjórar milljónir í mánaðartekjur. Þá, eins og nú, spilaði hann með Stabæk. Meðaltekjur þeirra Íslendinga sem spiluðu í norsku úrvalsdeildinni árið 2009 voru rúmar 2,2 milljónir. Þeir íslensku handboltamenn sem þar spila eru langt undir því meðaltali. Það skal tekið fram að upplýsingar um heildartekjur einstaklinga er að ræða hverju sinni. Líklegt er að þeir sem spila knattspyrnu í neðri deildum Noregs og handbolta hafi einnig aðra tekjustofna.Þá er einnig rétt að taka fram að eftirfarandi tölur eru meðaltalstekjur fyrir allt árið, óháð því hversu lengi viðkomandi hafði tekjur í Noregi á árinu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira