Alex Jurshevski og þingmenn Íslands Þór Saari skrifar 18. mars 2010 09:27 Alex Jurshevski, skeleggi Kanadamaðurinn sem hræddi líftóruna úr Samfylkingunni og helftinni af Vinstri Grænum í Silfri Egils á sunnudaginn mætti fyrir tveim nefndum Alþingis í gær, en hann hefur verið hér á landi í nokkra daga að kynna sig og fyrirtæki sitt. Þetta var nefndardagur sem lengi verður í minnum hafður. Þessa vikuna eru nefndardagar á dagskrá miðvikudag, fimmtudag og föstudag og gert ráð fyrir með sæmilegum fyrirvara hvenær hvaða nefndir eiga að funda. Ekki vantaði það að Kanadamaðurinn væri boðaður á skipulögðum nefndartímum en skyndilega voru allir fulltrúar VG í fjárlaganefnd og allir fulltrúar Samfylkingar nema formaður nefndarinnar, Guðbjartur Hannesson, orðnir bókaðir á fundi annars staðar. Fundurinn var "valkvæður" sagði formaðurinn, eitthvað sem fyrirfinnst ekki í þingsköpum Alþingis, en sýnir til hvaða ráða menn eru tilbúnir að grípa til að losna við eitthvað sem er ekki í samræmi við AGS trúarjátninguna. Fundurinn í efnahags- og skattanefnd var einnig frekar þunnskipaður stjórnarliðum. Það má vafalaust segja sitt hvað um títt nefndan Kanadamann eins og aðra dauðlega menn og skrímsladeild Samfylkingarinnar hefur verið ötul við það. Fékk meira í viðskiptaráðherra í liðið sem úthlutaði manninum meiri auri en hann sjálfur fékk frá skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins þegar hann vogaði sér að gagnrýna brothætt bankakerfi um mitt ár 2008. Skjótt skipast veður í lofti er stundum sagt. Gylfi Magnússon orðinn að Þorgerði Katrínu á nánast augabragði. Kanadamaðurinn er hins vegar að selja þjónustu og hefur aldrei farið dult með það. Þjónustu sem byggir á sérfræðiþekkingu í skuldastýringu ríkissjóða sem íslenskt stjórnsýsla býr ekki yfir nema að litlu leiti. Sú þekking sem hann miðlaði til nefndanna hvað umgjörð skuldastýringar varðar, er almennt í anda þess sem kallast "best practices" hjá OECD (Efnahags- og þróunarsamvinnustofnunni) og er stefna sem aðildarríkin hafa meira og minna náð saman um eftir margra ára samstarf og samvinnu, nema Ísland að sjálfsögðu. Ísland sagði sig úr samstarfinu árið 2007, lagði niður Lánasýslu ríkisins og flutti skuldastýringu ríkissjóðs til Seðlabankans á þeim forsendum að við skulduðum ekki neitt og myndum sennilega ekki gera framar. „Við færum okkur nær skipulagi í nágrannalöndum" sagði þáverandi fjármálaráðherra Árni Mathiesen. „Eins og í Danmörku" sagði hann en „gleymdi" að geta þess að Danmörk er einmitt dæmið sem er notað um hvernig skuldastýring á EKKI að vera. Seðlabanki Íslands tapaði síðan nær 400 milljörðum króna. Hafandi unnið sjálfur í Lánasýslu ríkisins og síðar sem ráðgjafi hjá OECD hef ég sem þingmaður talað fyrir betra fyrirkomulagi á skuldastýringu ríkissjóðs Íslands enda er „best practices" við skuldastýringu eitt af þeim grundvallaratriðum (ásamt háu lánshæfismati) sem erlendir fjárfestar líta til þegar þeir eru að fara að lána ríkisstjórnum fé. Þótt leitt sé frá að segja þá er ekki líklegt að Íslandi bjóðist viðunandi lánskjör (ef þeir þá fá lán) á erlendum mörkuðum ef skuldastýring ríkissjóðs er ekki í bestu mögulegu umgjörð. Í því samhengi skiptir meira að segja Icesave litlu máli. Þess vegna er mikilvægt að hlýtt sé á erlenda sérfræðinga og það verður að gera þá kröfu til þingmanna að þeir geti skilið á milli söluræðu og innihalds, því allir (eða flestir alla vega) sem koma fyrir þingnefndir eru í rauninni, í einhverri merkingu að selja eitthvað. Hvað um það. Vegna þess að Kanadamaðurinn hafði einnig skoðanir á AGS og þeim lánum sem íslensk stjórnvöld vilja fá þar, skoðanir sem ekki eru í samræmi við „ríkjandi viðhorf" í stjórnsýslu og stjórnkerfi, en hann telur eins og margir aðrir að þau muni bara gera slæma stöðu enn verri. Þá vildu þingmenn meirihlutans ekki hitta manninn og sá undir iljarnar á þeim í bæði fjárlaganefnd (nema formanninum) og einnig í efnahags- og skattanefnd þar sem Lilja Mósesdóttir (VG) og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Samfó) voru þau einu stjórnarmegin sem sátu allan fundinn. Fundirnir voru á margan hátt upplýsandi og hefðu gagnast öllum þingmönnum vel þótt söluræðan sjálf færi stundum fram úr hófi. Kanadamaðurinn benti á marga gagnlega þætti sem þarf að gaumgæfa en því miður komst það ekki til skila til þeirra sem mestu ábyrgðina bera. Hann talaði líka oft eins og hann væri að tala niður til barna og um íslendinga eins og þeir vissu hreint ekkert hvernig staðan raunverulega væri. Þetta er hins vegar talandi sem ég sjálfur hef talsvert orðið vitni að hjá embættis- og ráðamönnum erlendis og ætti að vekja fólk til alvarlegrar umhugsunar um hvers vegna talað er um og til Íslands með þessum hætti. Hann vildi líka „selja bílinn" líkt og allir bílasalar, en það verður að hafa í huga að þó menn séu bílasalar er ekki þar með sagt að þeir búi ekki yfir mikilvægri þekkingu um bíla almennt sem og um sérstakar tegundir. Það væri gagnlegt og fullorðið ef þingmönnum bæri gæfa til að vinna betur saman og líta á lausn verkefnanna framundan sem flókin og erfið verkefni sem krefjast hugsanlega margháttaðra lausna, frekar en að lúta algerlega framkvæmdavaldinu og tilskipunum þess og fylgja þeim sem trúarbrögðum sem má ekki hrófla við. Miðað við reynslu mína af þessu þingi er hins vegar ekki líklegt að þingmönnum þess takist það, alla vega ekki hvað efnahagsmálin varðar. Þór Saari Höfundur er þingmaður Hreyfingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þór Saari Mest lesið Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar