Mourinho: Vitnaði í Tony Soprano á blaðamannafundi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2010 20:00 Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid. Mynd/AP
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, ætlar að passa upp á það að leikmenn Real endurtaki ekki leikinn frá því fyrir ári síðan þegar liðið datt óvænt út úr spænska Konungsbikarnum á móti smáliðinu Alcorcon. Real Madrid tapaði fyrri leiknum 0-4 á móti Alcorcon og vann síðan aðeins 1-0 á heimavelli og féll því úr leik í 32 liða úrslitum. Þetta var eitt af mörgum stórum áföllum liðsins á síðustu leiktíð. Real Madrid hefur keppni í spænska Konungsbikarnum á morgun og Mourinho vitnaði í Tony Soprano úr bandaríska sjónvarpsþættinum The Sopranos á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Ef það sama gerist í ár og í fyrra á móti Alcorcon þá mun ég strika þá leikmenn sem spila út af sakramentinu og þeir verða sem dauðir í mínum augum," sagði Jose Mourinho. „Karim Benzema verður í byrjunarliðinu og Cristiano Ronaldo mun einnig spila. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir mig," sagði Mourinho. Mesut Ozil, Xabi Alonso og Ricardo Carvalho fá hinsvegar frí. Real Madrid mætir Real Murcia í 32 liða úrslitunum á morgun en sama dag spilar Barcelona við 3. deildarlið Ceuta.
Spænski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Klúður Koo bjargaði lífi hestaþjálfara Sport Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Aron: 4-2 verður að duga í dag Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Viktor Bjarki skoraði með hælspyrnu Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skagamenn í seinni Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Modric í aðgerð eftir harkalegt höfuðhögg Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Fá leyfi til að leika sér í fríinu Biðst afsökunar á hnefasamlokunni Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Fékk sér tebolla með Ratcliffe Setti sjálfan sig í bann eftir ásakanir Sjá meira