Benítez fékk upplýsingar um Lille frá sínu gamla liði á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2010 14:30 Rafael Benítez, stjóri Liverpool. Mynd/AFP
Rafael Benítez, stjóri Liverpool, heimtar betri frammistöðu frá lærisveinum sínum í Liverpool, á móti Lille í Evrópudeildinni í kvöld, heldur en í tapinu á móti Wigan á mánudaginn. „Lille er með gott lið. Fólk veit ekki mikið um þá en ég hef talað við mína gömlu félaga hjá Valencia og þeir segja að þetta sé öflugt lið og að þetta verði erfiður leikur fyrir okkur," segir Rafael Benítez. Lille mætti Valencia í riðlakeppni Evrópudeildarinnar þar sem Valencia vann heimaleikinn 3-1 en liðin gerðu síðan 1-1 jafntefli í Frakklandi. Lille er eins og er í fimmta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar fjórum stigum á eftir toppliði Bordeaux. „Lille-liðið er gott á heimavelli og þeir munu koma tilbúnir í þennan leik. Þetta er mjög mikilvæg keppni fyrir félagið og það gerir þá enn hættulegri," segir Benítez. „Við getum ekki spilað eins og við gerðum á móti Wigan því við verðum að fara út á völlinn til þess að skora mörk," sagði Benítez. Leikur Lille og Liverpool verður í beinni útsendingu á Stöð Sport klukkan 18.00 í kvöld og strax á eftir verður sýndur leikur Fulham og Juventus.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira