Kristianstad tapaði fyrir meisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júní 2010 19:08 Margrét Lára Viðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Heil umferð fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristianstad, lið Elísabetar Gunnarsdóttur, tapaði fyrir meisturum Linköping á útivelli, 3-0. Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Erla Steina Arnardóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad en sú fyrstnefnda var tekin af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Topplið Malmö vann öruggan 4-1 sigur á nýliðum Tyresö á heimavelli. Þóra B. Helgadóttir var í marki Malmö en Dóra Stefánsdóttir er enn frá vegna meiðsla. Þá gerðu Örebro og Sunnanå markalaust jafntefli. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir var í byrjunarliði Örebro en Edda Garðarsdóttir tók út leikbann í leiknum. Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð í marki Djurgården sem tapaði fyrir Kopparberg/Göteborg á útivelli, 1-0. Malmö er sem fyrr segir í efsta sæti deildarinnar en liðið er með 28 stig, fjórum meira en Kopparberg/Göteborg sem er í öðru sæti. Kristianstad er í fjórða sæti með sautján stig og Örebro í því sjötta með fimmtán. Djurgården er svo í tíunda sæti með sex stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira