Sjælsö Gruppen skilaði 4 milljörðum í hagnað 3. mars 2009 13:02
Fasteignafélagið Sjælsö Gruppen skilaði 205 milljónum danskra kr. hagnaði fyrir skatt á síðasta ári eða um 4 milljörðum kr.. Björgólfur Thor Björgólfson á 30% í Sjælsö Gruppen ásamt bræðrunum Torben og Ib Rönje í gegnum félagið SG Nord Holding. Þessi hagnaður er mun minni en árið 2007 er Sjæsö Gruppen skilaði um milljarði danskra kr. eða um 20 milljörðum kr. í hagnað. Samkvæmt frétt um málið á business.dk mun Sjælsö Gruppan hafa afskrifað 65 milljónir danskra kr. eða um 1,3 milljarða kr. eftir árið sökum markaðsaðstæðna á árinu en fjármálakreppan hefur komið við kaunin á Sjælsö eins og öðrum fasteignafélögum í Danmörku. Sjælsö íhugar nú að fá nýtt fjármagn inn í félagið og yrði það hugsanlega gert með nýju hlutafjárútboði að því er segir á business.dk. SG Holding sem er stærsti hluthafi félagsins mun vera jákvætt gagnvart slíku hlutafjárútboði. Eignaumsvif Sjælsö námu tæpum 3,3 milljörðum danskra kr. um áramótin síðustu, eða um 66 milljörðum kr. en þessi upphæð nam 2,9 milljörðum danskra kr. árið áður.
Mest lesið Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira