Fall á bandarískum hlutabréfamarkaði 20. júní 2008 20:09
Gengi hlutabréfa lækkaði verulega á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Fallið orsakast af mikilli hlutabréfasölu fjárfesta, sem nú óttast að bankar og fjármálafyrirtæki beri með sér fleiri lík í lestinni sem geti valdið frekari afskriftum. Þá hækkaði olíuverð nokkuð eftir mikla verðlækkun í gær. Hlut að máli eiga væntingar um að verðhækkun Kínastjórnar á eldsneyti muni vart slá á mikla eftirspurn eftir olíudropanum auk þess sem spenna hefur vaxið mjög í samskiptum Ísraelsmanna og Írana. Í ofanálag er óttast að bandarískur bílaiðnaður verði fyrir verulegum skakkaföllum vegna samdráttar í efnahagslífinu vestra. Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,84 prósent og fór undir tólf þúsund stiga markið. Það hefur ekki gerst síðan um miðjan marsmánuði. Þá féll Nasdaq-vísitalan um 2,27 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira