Aðalsteinn hættur hjá Fylki og á leið til Þýskalands Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2008 11:05 Aðalsteinn Eyjólfsson er að hætta hjá Fylki.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Fylkis sem leikur í N1-deild kvenna, er hættur hjá liðinu og á leið til Þýskalands þar sem hann mun stýra karlaliði. Þetta staðfestir Gunnar Kristinsson, formaður stjórnar handknattleiksdeildar Fylkis, í samtali við Vísi í dag. Aðalsteinn mun taka við liði SVH Kassel sem leikur í þriðju efstu deild í Þýskalandi - svokallaðri Regionalliga. Kassel leikur í suðvesturriðli deildarinnar en alls eru riðlarnir fimm. Sigurvegarinn í hverjum riðli kemst upp í B-deildina. Kassel er nýliði í deildinni og sagði Gunnar að þetta hafi komið óvænt upp í síðustu viku. „Honum var boðið út til að skoða aðstæður hjá félaginu. Í kjölfarið var honum gert tilboð sem hann gat ekki hafnað," sagði Gunnar en Aðalsteinn heldur utan á fimmtudaginn. „En ég vil ítreka það að þetta er allt gert í góðu. Aðalsteinn er búinn að standa sig frábærlega hjá Fylki og lítur á þetta sem heilmikið tækifæri fyrir sig. Það er ekki hægt að standa á móti því." Gunnar sagði enn fremur að Fylkir muni ganga frá sínum þjálfaramálum í dag. Liðið er í neðsta sæti deildarinnar en það er enn stigalaust eftir átta umferðir.
Olís-deild kvenna Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira