Evran styrkist eftir vaxtaákvörðun 5. júní 2008 16:47 Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans. Mynd/AFP
Gengi evrunnar styrktist nokkuð gagnvart bandaríkjadal í kjölfar þess að evrópski seðlabankinn ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum í dag. Þá hækkaði hráolíuverð lítillega, eða um einn dal. Gengi evru styrktist um 0,9 prósent og kostaði ein evra 1,5569 dali um miðjan dag. Þá fór hráolíuverð í 123,3 dali á tunnu í dag eftir að ákvörðun evrópska seðlabankans lá fyrir. Þetta er snarpasta verðhækkunin síðan í síðustu viku en verðið hafði lækkað um fimm dali síðan á föstudag í síðustu viku. Fyrir um hálfum mánuði fór olíutunnan í 135 dali á tunnu og hafði aldrei verið hærri. Trichet lét í það skína í dag að svo gæti verið að seðlabankinn hækki stýrivexti lítillega í næsta mánuði til að sporna við aukinni verðbólgu. Fréttastofa Reuters segir ólíklegt að stýrivextir verði lækkaðir frekar í Bandaríkjunum á næstunni og megi því reikna með að gengi bandaríkjadals, sem hefur verið á hraðri niðurleið, styrkist í kjölfarið.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Alvotech stóðst úttekt FDA Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira