Út(sáð)rás Ólafur Sindri Ólafsson skrifar 10. apríl 2008 03:00 Þriðji hver gestur klámsíðu er kona og konur eru miklu líklegri en karlar til að stunda raunverulegt kynlíf með manneskju sem þær kynnast á netinu. Bæði í erótískum og klínískum tilgangi. Kynferðisleg þjónusta við konur er nýjasta netbólan. Einhver afkastamesti kasanóva netheima er 45 ára gamall Breti sem heitir John Gonzales. Síðustu misserin hefur hann stundað ábátasama smáiðju úr hægindastól á Spáni. John er netsæðissali. Hann gerir út á lesbíur. Þjónustan fer þannig fram að lesbíurnar panta sæðisskammta frá John (og vinum hans þegar mikið er að gera eða John illa upplagður) í gegnum þartilgerða heimasíðu. Pöntunin er framleidd og stuttu seinna bankar hraðsendill uppá hjá kúnnanum með pakka. Fyrirtæki Johns fékk töluverða fjölmiðlaathygli. Í framhaldinu spruttu upp aðrir iðjuhöldar, sem höfðu hreint ekkert á móti því að fá borgað fyrir að stunda frímerkjasæbersex. Brátt fylltust stræti og torg af hraðsendlum með kælikassa að banka uppá hjá burstaklipptum konum. Úr er orðinn blómlegur samevrópskur iðnaður. John Gonzales (sem jafnaðarlegast er kallaður „Seedy Gonzales") er þó frumherjinn og erkitýpan. Hann er þybbinn með heimskulegt augnaráð og fitugt hár. Hann hefur aldrei borgað svo mikið sem skilding í meðlag með tveimur dætrum sínum og virðist raunar hafa meiri áhuga á tveggjamæðra hálfsystkinum þeirra. Nú eru nefnilega þegar skjalfest tilfelli um börn sem svona komu undir. Sem verður að teljast dálítið kraftaverk, sérstaklega í ljósi þess að safinn vill súrna í flutningum og einhver dæmi munu vera þess að hann hafi verið langt frá því að vera boðlegur í upphafi. Oft og tíðum eru sæðisfrumur framleiðendanna svo helteknar af magnleysi og sjúkdómum að þær eru löngu dauðar áður en dinglað er. En nú hefur gamanið kárnað hjá Jóni. Hann gerðist of stórtækur og safnaði skuldum. Hraðsendlar og heljarkvendi áttu hjá honum útistandandi skuldir og máttlaus tilraun hans til að hrista af sér fortíðina og hefja störf undir nýju nafni urðu að engu. Í fyrradag var hann svo dæmdur fyrir svik og pretti. Nú er lag fyrir íslenska karla. Hér er gullið framsóknarlegt tækifæri til að leiðrétta viðskiptahallann við útlönd með smáskammtalækningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Sindri Ólafsson Mest lesið Má ég líka gera upp í evrum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skítamix sem börnin borga Róbert Ragnarsson,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Unga fólkið ber byrðarnar Arnar Birkir Dansson Skoðun Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason Skoðun Arfleifð Davíðs Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Menningin á heima í Kórnum Svava H. Friðgeirsdóttir Skoðun Bandarískir landgönguliðar í Íran Arnór Sigurjónsson Skoðun Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn Böðvar Ingi Guðbjartsson Skoðun Við erum í þessu saman Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Hjálp! Baldvin Björgvinsson Skoðun