Leitar víðtæks stuðnings Guðjón Helgason skrifar 15. nóvember 2007 12:31
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, leitar eftir stuðningi allra flokka á danska þinginu í mikilvægum málaflokkum nú þegar þriðja ríkisstjórn hans er í burðarliðnum. Meirihlutinn er naumur - stendur og fellur með Færeyingi og sýrlenskum innflytjanda. Tæpara getur það varla verið. Meirihlutinn veltur á einum þingmanni - Færeyingnum Edumd Joensen. Hann er þó ekki á því að styðja Fogh Rasmussen í innanríkismálum - þykir það ekki viðeigandi frekar en að Danir skiptir sér að innanríkismálum Færeyinga. Þetta þýðir að sýrlenski innflytjandinn Naser Khader og Nýja bandalagið hans eru í góðri stöðu nú þegar samið er um stuðning við stjórnina. Khader sagði fyrir kosningar að hann styddi Fogh Rasmussen í embættið en vildi að hann færi til drottningar og ósakði eftir nýju stjórnarmyndunarumboði. Það þurfti Fogh Rasmussen hins vegar ekki að gera fyrst að meirihlutinn hélt. Khader segist styðja forsætisráðherrann í flestum innanríkismálum - þó ekki í skatta- eða innflytjendamálum. Áhugavert telja stjórnmálaskýrendur að sjá hvernig gangi að stilla saman strengi Nýja bandalagsins og Danska þjóðarflokksins - sem er með andsnúinn innflytjendum - til stuðnings við stjórn forsætisráðherra. Þess vegna biðlar Fogh Rasmussen til allra flokka á þingi. Hann vill samstarf í erfiðum málaflokkum - sem dæmi í heilbrigðis-, umhverfis og orkumálum. Jafnaðarmenn - undir forystu Helle Thorning-Schmidt - sem hlutu verstu útkomu í kosningunum í heila öld - segjast reiðubúnir til viðræðna - það vilja hins vegar flokkarnir lengst til vinstri alls ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Sjá meira