Næstráðandi Rauðu Kmerana handtekinn Guðjón Helgason skrifar 19. september 2007 19:00 Nuon Chea, næstráðandi Rauðu Kmeranna í Kambódíu, handtekinn og færður í þyrlu í heimabæ sínum Pailin í dag. MYND/AP
Næstráðandi Rauðu Kmeranna í Kambódíu var handtekinn í dag. Eftir er að ákveða hvort hann verði kærður fyrir þjóðarmorð. Sérstakur dómstóll Sameinuðu þjóðanna rannsakar nú fjöldamorð Kmeranna á valdatíma þeirra. Talið er að Rauðu Kmerarnir hafi drepið nærri tvær milljónir manna á valdatíð sinni í Kambódíu árin 1975 til 79. Ekki er lengur hægt að sækja leiðtoga Kmeranna, Pol Pot, til saka - hann lést 1998. Nuon Chea - næstráðandi eða bróðir númer tvö eins og hann var kallaður - er hins vegar enn á lífi - áttatíu og tveggja ára. Hann var handtekinn á heimili sínum í Pailin í norð-vestur Kambódíu, nærri landamærunum að Taílandi. Flogið var með hann til höfuðborgarinnar, Phnom Penh, þar sem hann mun svara spurningum dómara við sérskipaðan dómstól Sameinuðu þjóðanna. Síðan verður ákveðið hvort hann verði kærður. Kaing Guek Eav, betur þekktur sem Duch - sem rak fangelsi Rauðu Kmeranna, var sá fyrsti sem dómstóllinn lét handtaka. Hann var kærður fyrir glæpi gegn mannkyninu í síðasta mánuði. Nuon Chea sagði í viðtali í síðasta mánuði að hann vildi sanna sakleysi sitt. Hann ætti vissulega sök á ýmsu sem gerðist á valdatíma Kmeranna en hann bæri ekki ábyrgð á morðunum. Hann væri þó sekur um að hafa ekki verndað landa sína.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira