Neyslugleðin náði hámarki í júnímánuði Gissur Sigurðsson skrifar 12. júlí 2007 12:31
Íslendingar grilluðu, átu, drukku og gerðu sér glaðan dag sem aldrei fyrr í síðasta mánuði og er þessi mikla neyslugleði meðal annars rakin til góðviðris. Í samantekt rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að velta í dagvöruverslun var röskum 16 prósentum meiri í nýliðnum júní samanborið við júní í fyrra, á föstu verðlagi, og áfengiskaup voru 13 prósentum meiri á föstu verðlagi. Áfengisneyslan í júní síðastliðnum var heilum 66 prósentum meiri en í janúar síðastliðnum, svo sveiflur í neyslunni séu skoðaðar. Margt er talið hafa lagst á eitt um gríðarlega neyslu í síðasta mánuði. Óvenju gott veður var nær allan mánuðinn á langfjölmennasta svæði landsins. Talið er að aldrei hafi meira verið grillað, sem sést af því að það er farið að jaðra við skort á ýsmu grillkjöti. Bjór og léttvínsneysla er víða orðin nátengd grillveislum og fleira fólk var almennt lengur í miðborg Reykjavíkur um helgar en venjulega vegna góðviðris. Þar við bætist að fimm helgar voru í mánuðinum, þar af tvær óvenju miklar ferðahelgar, en ferðalögum fylgir gjarnan meiri neysla, bæði á mat og víni.
Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira