Ráðist á mosku í Írak Jónas Haraldsson skrifar 13. júní 2007 07:45 Á myndinni má sjá moskuna við enda götunnar. Reykur er um allt eftir sprenginguna í morgun. MYND/AFP
Tveir bænaturnar á einni helgustu mosku sjía múslíma, al-Askari moskunni, í Írak eru nú laskaðir eftir sprengingar í morgun. Ráðist var á moskuna árið 2006 og var sú árás kveikjan að baráttu sjía og súnní múslima. Þúsundir hafa látið lífið í þeim átökum. Talið er að þetta geti enn aukið á átök trúarhópa í Írak. Fréttaskýrendur velta nú fyrir sér af hverju það var ekki betri öryggisgæsla við moskuna. Í henni eru grafir tveggja fyrrum klerka sjía múslima í Írak sem taldir eru hafa komið í beinan karllegg frá Múhammeð spámanni. Mehdi-herinn, sem lýtur stjórn Múktada al-Sadr, hefur verið hvattur til þess að sýna ró og frið. Eftir sprenginguna árið 2006 fóru þeir í hefndaraðgerðir gegn súnníum í Bagdad og í framhaldi af því hófust átök súnnía og sjía fyrir alvöru. Írakskur embættismaður sagði fyrir stuttu að komið hefði verið í veg fyrir sprengjuárás á moskuna fyrir um tveimur árum síðan. Vitni sögðu að barist hefði verið við moskuna í nótt.
Erlent Mest lesið Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Innlent Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Innlent Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Erlent Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Innlent Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Innlent „Fólk er bara að vinna minna“ Innlent Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim Innlent „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Innlent Fleiri fréttir Íranir búa sig undir árásir landherliðs Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Í haldi lögreglu eftir að hafa ekið á gangandi vegfarendur Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Sjá meira