Kosovo tilbúið að lýsa yfir sjálfstæði Jónas Haraldsson skrifar 7. júní 2007 18:16 Á þessari mynd sést staður við útjaðar Kosovo þar sem Serbar eru grunaðir um að hafa grafið fórnarlömb fjöldamorða. MYND/AFP
Stjórnvöld í Kosovo eru reiðubúin til þess að lýsa einhliða yfir sjálfstæði héraðsins. Á sama tíma hvetja þau Vesturlönd til þess að boða til atkvæðagreiðslu um málið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir að Rússar eigi að öllum líkindum eftir beita neitunarvaldi gegn slíkri stuðningsyfirlýsingu. Leiðtogi albanskra Kosovoa, Veton Surroi, sagði í dag að héraðið myndi lýsa yfir sjálfstæði með stuðningi Vesturlanda ef sú tillaga sem nú er fyrir öryggisráðinu verður felld. Hann fer með mál Kosovo á alþjóðavettvangi. Surroi sagði líklegast að Rússar myndu beita neitunarvaldi og ef það gerðist bæri stjórnvöldum í Kosovo skylda til þess að fara eftir vilja þegna sinna, sem væri sjálfstæði og samvinna með alþjóðasamfélaginu. Hann sagði þetta eftir fundi með George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, en þeir funduðu í Prag á þriðjudaginn var. Rússar vilja að Serbar og Kosovoar leysi málin sín á milli og segja deilu þeirra vera innanríkismál sem Sameinuðu þjóðirnar eigi ekkert með að hlutast til í. Martti Ahtisaari, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Kosovo, hefur lagt til að héraðið verði sjálfstjórnarsvæði innan Serbíu með eigin utanríkisstefnu en það hafa Rússar ekki viljað samþykkja.
Erlent Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Sjá meira