Bandaríska þingið samþykkir aukafjárveitingu Jónas Haraldsson skrifar 25. maí 2007 06:55 Öldungadeildarþingmaðurinn Hillary Clinton ræðir við fréttamenn eftir atkvæðagreiðsluna í nótt. Hún greiddi tillögunni ekki atkvæði sitt. MYND/AFP
Báðar deildir bandaríska þingsins samþykktu í nótt aukafjárveitingu til hersins án þess að tengja hana við heimkvaðningu hermanna frá Írak. Þar með lýkur einni lengstu deilu þingsins og forseta Bandaríkjanna, George W. Bush, en demókratar höfðu lengi ætlað sér að tengja aukafjárveitinguna við heimkvaðningu hermanna. Bush beitti neitunarvaldi gegn öllum frumvörpum þar að lútandi og þar sem demókratar höfðu ekki nægan meirihluta til þess að ógilda ákvörðun forseta, sættu þeir sig við málamiðlun. Bush sagði nýja frumvarpið merki um að sátt hefði náðst og að báðir flokkar hefðu sýnt stuðning í verki við þá hermenn sem eru að berjast í Afganistan og Írak. Engu að síður eru nokkur skilyrði í því en þau eru öll tengd árangri íröksku stjórnarinnar. Bush getur þó ógilt skilyrðin, ef honum svo sýnist. Demókratar neituðu að viðurkenna að þeir hefðu beðið lægri hlut í deilunni við Bush. Fyrir að hleypa frumvarpinu í gegn fengu þeir fjármuni til þess að vinna að innanlandsmálum. Leiðtogi demókrata í öldungadeildinni sagði að dagar auðra ávísana bandaríska þingsins til George W. Bush væru nú liðnir.
Erlent Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira