McEnroe: Federer hefur tvö ár til að sanna sig 26. apríl 2007 17:30 Federer og Nadal eru bestu tennisleikarar heimsins, en þó Federer þyki nú þegar einn sá besti allra tíma - slær hann Nadal ekki við á leirvöllunum NordicPhotos/GettyImages
Skaphundurinn og tennisgoðsögnin John McEnroe frá Bandaríkjunum segir að Roger Federer verði að sanna sig á leirvöllum ef hann ætli sér að gera tilkall til þess að verða kallaður besti tennisleikari allra tíma. Federer hefur enn ekki náð að vinna opna franska meistaramótið á Roland Garos þar sem spilað er á leir. "Roger er þegar einn allra besti tennisleikari sem uppi hefur verið en hann verður að vinna Roland Garros ef hann ætlar sér að verða óumdeildur konungur íþróttarinnar," sagði McEnroe, sem sjálfur náði best í úrslitin á mótinu árið 1984. "Ég veit að Federer getur unnið opna franska - en það verður mjög erfitt fyrir hann því hann er ekki alinn upp við það að spila á leir. 'Eg gef honum bara þetta ár og næsta til að vinna opna franska - því ef hann nær því ekki - verður það bara erfiðara verkefni fyrir hann að yfirstíga. Svo þarf hann auðvitað oftast að mæta Rafael Nadal á leirnum. Nadal finnst mér spennandi tennisleikari sem spilar af mikilli innlifun og við þurfum fleiri eins og hann í sportið," sagði þrefaldur Wimbledon-meistari McEnroe, en sjaldan var lognmolla í kring um hann sjálfan þegar hann spilaði á sínum tíma.
Erlendar Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Fleiri fréttir Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi „Ég finn lykt af ótta, ég sé eitthvað í augum hans“ Hætti við að keppa út af hundinum sínum KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Dallas Cowboys er enn verðmætasta íþróttalið heims Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Setti heimsmet fyrir mömmu sína Segir fjórðung í bók Óla ósannan Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ „Er því miður kominn í jólafrí“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið Sjá meira