Segir fátt koma í veg fyrir álver í Helguvík 24. apríl 2007 19:27
Fátt kemur í veg fyrir byggingu álvers í Helguvík eftir undirritun orkusamnings í gær segir bæjarstjórinn í Reykjanesbæ. En álversandstæðingar Sólar á Suðurnesjum eru á öðru máli. Það er óhætt að segja að það blási byrlega fyrir stuðningsmenn álvers í Helguvík eftir orkusamninga sem undirritaðir voru í gær. Andstæðingar álversins úr Sól á Suðurnesjum eru hins vegar á öðru máli og segja hart fram gengið og reynt að klára málið án þess að íbúar fái nokkuð um það að segja. Baráttunni sé þó ekki lokið. Enn sé hægt að kjósa um álverið ef fólk sé tilbúið að hugleiða þann valkost. Það sé mikill þrýstingur um það, meðal annars frá Morgunblaðinu. Aðspurður segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, ólíklegt að eitthvað komi í veg fyrir að álver rísi í Helguvík. Umhverfismat vegna álversins líti vel út og það verði kynnt þegar það verði tilbúið. Ætlunin sé að leggja jarðstreng frá Fitjum sem sé meginæðin inn á Helguvíkursvæðið. Talskona Sólar á Suðurnesjum segir baráttuna ekki fáranlega þrátt fyrir að allt að 1100 störf geti skapast í tengslum við álverið. Störf séu í boði annars staðar. Það vanti 200-300 störf í Bláa lónið og þá skapist 70-100 störf á ári í flugstöðinni. Nóg sé um að vera á Reykjanesi.
Stóriðja Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira