Segjast hafa skotið geimflaug á loft 25. febrúar 2007 18:45
Íranar segjast hafa náð því takmarki sínu í gær að skjóta geimflaug á loft sem hafi síðan farið út fyrir gufuhvolf jarðar. Sérfræðingar segja að ef það reynist rétt geti Íranar hæglega smíðað langdrægar eldflaugar sem breyti stöðunni í kjarnorkudeilu þeirra við vesturveldin. Íranar hafa ekki farið leynt með geimferðadrauma sína og vilja skjóta fimm gervihnöttum á braut um jörðu fyrir árið 2010. Íranska sjónvarpið greindi frá geimskotinu í morgun og sagði það hafa heppnast vel. Engar myndir hafa verið sýndar af því. Fréttir af geimskotinu koma á afar viðkvæmum tíma í kjarnorkudeilu Írana og vesturveldanna. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar veittu Írönum til að hætta auðgun úrans rann út fyrir helgi án þess að orðið hafi verið við þeirri kröfu. Sérfræðingar segja að ef rétt reynist auki þetta enn á óvissuna í Mið-Austurlöndum. Þetta þýði þá að Íranar hafi náð tökum á þeirri tækni sem þurfi til að smíða langdrægar eldflaugar sem hljóti að valda áhyggjum hjá leiðtogum vesturveldanna. Fulltrúar þeirra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, auk Þjóðverja, funda um málið á morgun. Refsiaðgerðir verða þá ræddar.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er hættulegt ef við viljum áfram búa í frjálslyndu lýðræðissamfélagi“ Innlent „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Innlent Misskilningur um losunarmarkmið „stórkostlegur áfellisdómur“ Innlent Auka sýnileika milli rýma á leikskólum Innlent Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Innlent Hætta notkun metanhemjandi íblöndunarefnis Erlent Rannsaka tengsl Epstein við Clinton Erlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Hefur áhyggjur af aukinni dagdrykkju eldri borgara Innlent Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Fleiri fréttir Hætta notkun metanhemjandi íblöndunarefnis Rannsaka tengsl Epstein við Clinton Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Sjá meira