Leikmenn Chelsea tileinka Terry sigurinn 25. febrúar 2007 17:52 Frank Lampard lyftir deildabikarnum hátt á loft í dag. MYND/Getty
Hugur leikmanna Chelsea er hjá John Terry og tileinka þeir fyrirliða sínum sigurinn, en hann var borinn af velli hálf meðvitundarlaus í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho hrósaði liði Arsenal í hástert en sagði betra liðið hafa unnið leikinn. "Þetta er mjög skrítinn dagur fyrir okkur. Við unnum bikarinn og erum vissulega glaðir en á sama tíma er leiðinlegt að fyrirliði okkar skuli ekki getað tekið þátt í fögnuðinum með okkur. Þetta er sérstaklega erfitt fyrir mig því ég var innan við metra í burtu þegar slysið varð. Þetta var skelfilegt," sagði markaskorarinn Didier Drogba. Jose Mourinho var fullur lotningar í garð leikmanna Arsenal. "Að mínu mati spiluðu þessir ungu strákar mjög góðan leik. Þetta lið vann Liverpool, Everton og Tottenham og gerði okkur erfitt fyrir í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik var þetta allt annað, við vorum miklu betri og áttum sigurinn skilinn," sagði Mourinho en bætti við að slagsmálin undir lok leiksins hefðu verið óþörf. "Ég veit ekki hvað gerðist en þetta var mikil synd. Það var ljótt að sjá hvernig leikmenn höguðu sér," sagði Mourinho. Frank Lampard, sem tók við bikarnum í fjarveru Terry, sagði leikmenn tileinka fyrirliða sínum sigurinn. "Þetta var fyrir hann. Við munum fara með bikarinn til hans á sjúkrahúsið um leið og tækifæri gefst," sagði Lampard og lýsti aðdáun sinni yfir Didier Drogba. "Hann er einfaldlega bestur í heimi í augnablikinu."
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Leik lokið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Sjá meira