Banna reykingar í heimahúsum 24. febrúar 2007 15:56 Reykingamenn í Bandaríkjunum eiga erfiða daga.
Í Bandaríkjunum er nú stefnt að því að banna fólki að reykja á heimilum sínum og er slíkt reykingabann raunar víða komið á nú þegar. Þá eru einstök bæjarfélög búin að banna einnig reykingar utan dyra. Aðstandendur bannsins blása á mótmæli reykingamanna og segja að þeir hafi einfaldlega engin réttindi, það sé þvert á móti réttur allra manna að anda að sér fersku lofti. Reykur geti síast á milli íbúða.Víða í Bandaríkjunum verða menn nú þegar að skrifa undir loforð um að ekki verði reykt í íbúðum, ef þeir eru að leigja sér íbúð í fjölbýlishúsum. Sumsstaðar er gengið enn lengra og fólki sem þegar býr í íbúðunum er sagt að annaðhvort verði það að hætta að reykja, eða flytja eitthvað annað.Ólíklegt er að þeir sem kjósa að flytja eitthvað annað setjist að í bænum Calabasas, í Kaliforníu. Þar er bannað að reykja utan dyra, svosem í almenningsgörðum og strætóstoppistöðvum. Bæjarstjórnin í Calabasas sér þó aumur á reykingamönnum með því að girða af nokkra staði utan dyra, sem má reykja á.Það þykir bæjarstjórninni í Belmont óþarfi, en Belmont er skammt frá Los Angeles. Þar er bæjarstjórnin að undirbúa löggjöf sem bannar allar reykingar utan dyra, hvar sem er.
Erlent Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Sjá meira