Ronaldo fer ekki fet 9. febrúar 2007 15:57 Ronaldo hefur verið frábær í vetur.
Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo er ekki á förum frá Man. Utd. í bráð, að því er knattspyrnustjórinn Alex Ferguson segir. Ferguson ræddi við fjölmiðla í morgun í þeim tilgangi að binda enda á þær sögusagnir sem bendla Ronaldo við sölu til Barcelona eða Real Madrid í sumar. Jorge Mendes, umboðsmaður Ronaldo, sást á snæðingi með Txiki Begiristain, yfirmanni knattspyrnumála hjá Barcelona, í vikunni og ýtti það undir orðróminn um að Ronaldo væri á leið til Barcelona. Ferguson segir hins vegar að svo verði ekki. "Strákurinn er ánægður hér. Það er allt í góðu og engin vandamál. Svona vangaveltur um leikmenn eru einfaldlega hluti af boltanum og þær verða ekki umflúnar," sagði Ferguson og gerði lítið úr fréttum fjölmiðla. "Stundum tek ég upp dagblöðin og les um leikmenn sem ég á að vera að kaupa. Mér þykir það alltaf jafn fyndið. Þetta eru alltaf sögusagnir og vangaveltur sem eiga sér engar stoðir í raunveruleikanum. Það á við í máli Ronaldo." Ferguson sagði að Man. Utd. hefði upp á allt að bjóða sem knattspyrnumaður gæti sóst eftir. "Nema kannski loftslagið, sem er vissulega betra á Spáni. En þegar maður hugsar um hvað er í boði hjá Man. Utd., 67 þúsund áhorfendur í hverri viku, þá er það eitthvað sem fæst ekki allstaðar. Real Madrid, Barcelona og AC Milan fylla ekki sína leikvanga í hverri viku," sagði Ferguson.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira