Ísland tapaði fyrir Þýskalandi 28. janúar 2007 15:51 Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson kljást hér við Pascal Hens, leikmann Þjóðverja. Ásgeir Örn fékk rautt spjald fljótlega í síðari hálfleik fyrir þrjár brottvísanir. MYND/Getty
Íslendingar töpuðu síðasta leik sínum í milliriðli HM í handbolta gegn gestgjöfum Þjóðverja, 33-28. Þjóðverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum og leikur íslenska liðsins bar þess keim að liðið væri þegar búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit. Nokkuð ljóst er að Ísland hafnar í 3. sæti milliriðilsins. Íslenska liðið náði 1-0 forystu í leiknum en það var í fyrsta og eina sinn sem það hafði yfir í leiknum. Í stöðunni 4-4 skildu leiðir, Þjóðverjar skoruðu fimm mörk í röð og náðu forskoti sem þeir létu aldrei af hendi. Í hálfleik var munurinn sex mörk, 17-11, en í síðari hálfleik bætti þýska liðið smátt og smátt við forskot sitt. Mest var munurinn níu mörk í stöðunni 27-18 en íslenska liðið náði að minnka muninn á lokamínútunum og laga stöðuna eilítið. Þegar uppi var staðið munaði fimm mörkum á liðunum, 33-28. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari, leyfði öllum leikmönnum liðsins að spreyta sig nokkuð jafnt í leiknum og nýtti Markús Máni Michaelsson tækifærið til hins ýtrasta og skoraði 10 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson bætti við 7 mörkum en þeir tveir voru langatkvæðamestir hjá íslenska liðinu. Úrslitin þýða væntanlega að Íslendingar hafna í þriðja sæti milliriðilsins og Þjóðverjar í öðru, að því gefnu að Pólverjar leggi Slóvena af velli síðar í dag. Þá hafna Pólverjar í efsta sæti en Frakkar verða að öllum líkindum í því fjórða.
Erlendar Handbolti Íþróttir Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira