Spangir auka ekki vellíðan 28. janúar 2007 10:45 Ekki er vitað hvort að Beckham hafi notað spangir til þess að fá sitt glæsilega bros. MYND/AP
Að setja spangir í börn til þess að rétta tennur þeirra bætir ekki vellíðan eða lífsgæði síðar á ævinni. Þetta kom fram í nýrri breskri rannsókn sem kom út í byrjun janúar. Rannsóknarmennirnir voru að athuga hvort að sú útbreidda trú fólks að tannréttingar bæti sjálfsímynd og vellíðan ætti við eitthvað að styðjast. Til þess rannsökuðu þau líðan rúmlega eitt þúsund velskra barna frá tíu ára aldri til þrítugs á árunum 1981 til 2003. Þeir sem fengu spangir voru með betri tennur og voru ánægðari með þær en þeir sem fengu ekki spangir. Sú líðan hafði þó ekki áhrif á sjálfsímynd þeirra eða vellíðan samanborið við þá sem engar spangir fengu. Iain Hathorn, formaður breska Tannlæknafélagsins, sagði að rannsóknin gæfi tannlæknum betri innsýn í tannréttingar og áhrif þeirra á sjúklinga sína. Hathorn bætti þó við að í dag hugsaði fólk öðruvísi en á þeim tíma sem rannsóknin var gerð. Viðhorf til útlits og tæknin sem felst í tannaðgerðum hafi breyst. Hathorn vildi því meina að ef að rannsóknin yrði framkvæmd í dag hefðu niðurstöðurnar ef til vill orðið á annan veg.
Erlent Fréttir Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Erlent Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Erlent Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Innlent Vilja ekki feita innflytjendur Erlent Fleiri fréttir Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Sjá meira