Hákarinn spýtti honum út úr sér 23. janúar 2007 19:30
Rúmlega fertugur kafari liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ástralíu eftir að þriggja metra langur hvíthákarl réðst á hann undan austurströnd landsins í morgun. Hákarlinn beit um búk og síðan höfuð mannsins. Honum tókst með snarræði að pota í auga hákarlsins sem spýtti honum þá út úr sér. Eric Nerhus er fjörutíu og eins árs kafari. Hann var að kafa eftir sæsniglum undan Howe-höfða nærri bænum Eden í Austur-Ástralíu í morgun. Eden er um fjögur hundruð kílómetra suður af Sydney. Nerhus átti sér einskis ills von þegar þriggja metra hvíthákarl réðst á hann og beit um hann miðjan og síðan um höfuðið. Jim Hinckley, lögreglumaður, segir að svo virðist sem hákarlinn hafi náð manninum öllum upp í sig og bitið hann. Kafarinn hafi síðan náð að pota í auga hákarlsins og hann hafi á endanum spýtt honum út úr sér. Sonur Nerhus dró hann á land. Hann segir að faðir sinn hafi komið upp á yfirborðið, kallað á hjálp og sagt hákarl nærri sér. Sonur hans sá þá mikinn blóðpoll við hlið föður síns og togað hann upp úr vatninu. Reese Warren, sjúkraflutningamður, segir Nerhus hafa verið þakinn bitförum á brjóstkassa og baki. Nerhus var þegar fluttur á sjúkrahúsið í Eden með þyrlu. Þar liggur hann nú alvarlega slasaður en þó ekki talinn í lífshættu. Hvergi í heiminum er meira um árásir hákarla en við strendur Ástralíu. Sérfræðingar segja þær að meðaltali 15 á ári og aðeins ein þeirra dregur fórnarlambið til dauða.
Erlent Fréttir Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira