Hlakkar til að mæta Attenborough 20. janúar 2007 19:15
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er óhræddur við herferð breskra stjórnvalda gegn hvalveiðum Íslendinga, en verndarar hennar eru Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough. Hann óttast aftur á móti að aðgerðir Bretanna muni ganga af Alþjóðahvalveiðiráðinu dauðu.Greint hefur verið frá því að breska umhverfisráðuneytið hyggist efna til herferðar síðar í mánuðinum sem miðar meðal annars að því að fá ríki til að ganga í Alþjóðahvalveiðiráðið og styðja þau ríki sem þar eru fyrir og berjast gegn hvalveiðum. Verndarar þessarar herferðar eru þeir Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og Sir David Attenborough, en hann nýtur hvarvetna virðingar fyrir nátturlífsþætti sína. Þetta virðist ekki valda Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra teljandi hugarangri heldur kveðst hann hlakka til að eiga í efnislegum viðræðum við mann á borð Attenborough. Einar segir stuðning Blair við herferðina ekki koma á óvart enda hafi umhverfisráðherrann úr ráðuneyti hans þegar komið formlegum mótmælum á framfæri við sendiherra Íslands. Einar telur meiri ástæðu til að hafa áhyggjur af því að herferð Bretanna muni koma illa við Alþjóðahvalveiðiráðið. Ráðið sé að færast meira og meira út á jaðarinn og æ færri taki mark á því. Útspil Bretanna nú sé síst til að auka trúverðugleika þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira