Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda 13. janúar 2007 21:00 Svona lítur Peter Cech út á æfingum í dag - með veglegan höfuðbúnað til að verja höfuðkúpuna sem brákaðist svo illa í samstuði við Stephen Hunt, leikmann Reading, í oktober sl.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. "Á mánudag fæ ég 50 milljón punda manninn minn aftur á æfingu. Eftir þriggja mánaða legu er hann tilbúinn að snúa aftur," sagði Mourinho við enska fjölmiðla eftir leikinn. "Ég er ekki að segja að hann muni spila gegn Liverpool um næstu helgi en hann er búinn að ná sér. Besti markvörður í heimi er tilbúinn að spila," sagði Mourinho, en Cech hefur verið sárt saknað undanfarnar vikur og mánuði eftir að hafa brákað á sér höfuðkúpuna í leik gegn Reading í október sl. Áhorfendur á Stamford Bridge sungu nafn Mourinho hástöfum í leiknum gegn Wigan í dag og undirstrikuðu þannig stuðning sinn við þjálfarann í meintri deilu hans við stjórnendur félagsins. Mourinho kvaðst hrærður yfir viðtökunum en bætti við að hann teldi að málin myndu róast eftir sigurinn í dag. "Þegar illa gengur hjá félagi er eðlilegt að hamingjan verði illsjáanleg. Við höfðum ekki unnið síðustu leiki og því er eðlilegt að umræðan hafi verið neikvæð. Nú erum við aftur komnir á sigurbraut og þá líður öllum betur," sagði Mourinho.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Leik lokið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Sjá meira