LA Lakers lagði San Antonio 11. desember 2006 05:04 Lamar Odom var hársbreidd frá því að ná þrefaldri tvennu gegn San Antonio þegar hann skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar NordicPhotos/GettyImages
Los Angeles Lakers vann í nótt góðan sigur á San Antonio Spurs 106-99 á heimavelli sínum Staples Center í Los Angeles, en lið Spurs hafði unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers og Lamar Odom skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Manu Ginobili skoraði 23 stig af bekknum fyrir Spurs. Portland lagði Toronto á útivelli 93-83 án Zach Randolph sem tók út leikbann. Jarrett Jack skoraði 22 stig fyrir Portland en Mo Peterson skoraði 23 stig fyrir Kanadamenn. Phoenix valtaði yfir Charlotte 114-84 og vann þar með sinn tíunda leik í röð í deildinni. Amare Stoudemire skoraði 22 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Sean May setti persónulegt met með 26 stigum og 10 fráköstum hjá Charlotte. Sacramento vann auðveldan sigur á Atlanta á heimavelli 117-92 en liðið hafði tapað fimm leikjum í röð áður en það landaði sigrinum í nótt. Brad Miller skoraði 16 stig fyrir Sacramento, en Salim Stoudamire skoraði 26 stig fyrir Atlanta, sem var án Joe Johnson í leiknum. Loks vann Seattle sigur á Golden State 117-115 í bráðfjörugum leik í beinni á NBA TV sjónvarpsstöðinni, þar sem leikmenn Golden State fóru á kostum í fyrri hálfleik og skoruðu þar 72 stig - en urðu svo alveg bensínlausir á lokasprettinum og köstuðu frá sér sigrinum. Baron Davis skoraði 28 stig, gaf 13 stoðsendingar og hirti 9 fráköst fyrir Golden State, en Luke Ridnour skoraði 26 stig og gaf 9 stoðsendingar hjá Seattle sem vann þriðja leikinn í röð án aðalstjörnu sinnar Ray Allen.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Liverpool loks á sigurbraut á ný Enski boltinn Amad bjargaði stigi fyrir United Enski boltinn Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Fleiri fréttir „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Sjá meira