Egeland fundaði með umdeildum uppreisnarleiðtoga 12. nóvember 2006 18:38 MYND/AP
Jan Egeland, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, átti stuttan fund með Joseph Kony, leiðtoga Uppreisnarhers Drottins í Úganda, í frumskógi í Suður-Súdan fyrr í dag. Þar hugðist Egeland reyna að fá Kony til þess að sleppa börnum, konum og særðum sem uppreisnarher hans hefur rænt en Kony sagði herinn aðeins halda hermönnum föngnum. Með fundinum vildi Egeland einnig reyna að styðja við friðarviðræður milli Uppreisnarhersins og stjórnvalda í Úganda en blóðugt borgarastríð hefur staðið á í Úganda í 20 ár. Stríðið hefur kostað tugþúsundir manna lífið og um tvær milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín vegna þess. Kony er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi en her hans á að hafa rænt börnum bæði í Norður-Úganda og Suður-Súdan í stríðinu og þjálfað þau til hernaðar. Friðarviðræður milli stjórnvalda í Úganda og leiðtoga uppreisnarmanna hafa farið fram í bænum Juba í Suður-Súdan en þeim hefur lítið miðað áfram, meðal annars vegna ásakana á báða bóga um rof á vopnahléi.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Sjá meira