Dæmdur fyrir ofbeldi gagnvart fyrrverandi eiginkonu 6. nóvember 2006 13:15
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi sem er skilorðsbundið til þriggja ára fyrir að hafa ráðist inn á heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar og beitt hana ofbeldi. Fram kemur í dómnum maðurinn hafi komið að heimilinu og viljað fá barn þeirra sem þau deildu um forræði yfir. Því hafi konan neitað og við það hafi maðurinn orðið reiður og meðal annars tekið hana kverkataki. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en í ljósi þess að framburður hans var á reiki og framburður konunnar stöðugur ásamt því að barnið staðfesti frásögn móður sinnar þótti sannað að maðurinn hefði gerst sekur um líkamsárás. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að maðurinn hafði aldrei áður komist í kast við lögin en refsingin var þyngd vegna þess að árásin var framin gagnvart fyrrverandi eiginkonu hans, inni á heimili hennar að barni þeirra ásjáandi. Dómurinn telur árásina hafa verið algjörlega tilefnislausa og því var þriggja mánaða skilorðsbundinn dómur talinn hæfileg refsing.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Lést í sprengingunni Innlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Robert Mueller er látinn Erlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Fleiri fréttir Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Sjá meira