Mótmælt í Santiago 18. október 2006 23:54 MYND/AP
Til átaka kom milli lögreglu í Chile og námsmanna sem voru að mótmæla breytingum á löggjöf um menntamál í höfuðborginni, Santiago, í dag. Rúmlega hundrað mótmælendur voru handteknir eftir að grjóthnullungum rigndi yfir lögreglumenn sem svöruðu með því að sprauta vatni á mótmælendur. Löggjöfinni var mótmælt kröftuglega í maí og júní og höfðu stjórnvöld komið til móts við flestar kröfur stúdenta, þar á meðal að hætta við að krefjast greiðslu vegna inntökuprófa í háskóla. Námsmenn segjast ósáttir við hve seint gangi að koma lofuðum breytingum Michelle Bachelets, forseta Chile, í gegn. Yasna Provoste, menntamálaráðherra, segir ekkert réttlæta mótmælin í dag. Námsmenn mættu ekki í tíma í dag og gengu fylktu liði að menntamálaráðuneytinu í höfuðborginni. Lögregla reyndi að stöðva ferð þeirra en þá svöruðu námsmenn með grjótkasti auk þess sem þeir köstuðu málningasprengjum að bílum lögreglumanna. Felipe Harboe, vara-innanríkisráðherra, sagði í samtali við AP-fréttastofuna að 114 námsmenn hefðu verið handteknir. Færri námsmenn tóku þátt í mótmælunum í dag en í sumar þegar allt að 700 þúsund stúdentar gengu fylktu liði um götur borga í Chile.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Sigríður Björk segir af sér Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Greindur af gervigreind og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Innlent Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Erlent Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Innlent Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Erlent „Hvorki dropi né snjókorn úr lofti eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Sjá meira