Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð 13. október 2006 21:04 MYND/AP
Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar. Fram kemur á fréttavef BBC að liðþjálfi í sjóhernum bandaríska hafi heimsótt fangabúðirnar og skilið ummæli fangavarða þannig að það væri venja að berja til fanga í Guantanamo. Í yfirlýsingu liðþjálfans segir að hún hafi heyrt fangavörð lýsa því að hann hafi barið höfuð fanga við dyr á klefa hans. Bandaríkjamenn hafa hafnað ákalli Margaretar Beckett, utanríkisráðherra Breta, um að loka fangabúðunum. Beckett er sá æðsti embættismaður Breta sem hefur sett þessa skoðun fram opinberlega. Mörg hundruð grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi í Guantanamo-fangabúðunum og hafa þeir ekki verið ákærðir. Beckett segir fangabúðirnar gera jafn mikið fyrir málstað öfgamanna eins og gegn honum. Hún segir það óásættanlegt að halda mönnum áfram í fangabúðum án ákæru og að þeir fái að tala sínu máli fyrir dómstólum. Það samræmist ekki viðurkenndum mannréttindum og geri lítið í baráttunni gegn hryðjuverkum. Talsmaður Bandríkjastjórnar segir ráðamenn í Washington ósammála þessu. Þörf sé á búðunum því þar séu í haldi margir hættuelgir menn, þar á meðal þeir sem stóðu að baki hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Sjá meira