Fer fögrum orðum um Heiðar Helguson 1. október 2006 21:14 Aidy Boothroyd hefur miklar mætur á Heiðari Helgusyni og á alveg eins von á að íslenski landsliðsmaðurinn skori gegn sínum gömlu félögum annað kvöld NordicPhotos/GettyImages
Aidy Bootroyd segist ekki sjá eftir því að hafa selt Heiðar Helguson til Fulham á sínum tíma og segir að bæði Heiðar og Watford hafi hagnast á því á sínum tíma. Heiðar og félagar í Fulham sækja gamla liðið hans heim í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld og á Boothroyd von á því að íslenski landsliðsmaðurinn fái góðar móttökur. "Það var einfaldlega hárrétt tímasetning bæði fyrir Heiðar og fyrir okkur á sínum tíma, því félagið átti litla sem enga peninga þegar við seldum hann og við gátum styrkt lið okkar til muna fyrir þá peninga sem fengust fyrir Heiðar. Við náðum að kaupa nokkra leikmenn í staðinn sem ætlunin var að næðu að koma okkur í úrvalsdeildina - og það tókst. Heiðar er leikmaður sem við þurfum að hafa góðar gætur á þegar Fulham kemur hingað á mánudag, en við verðum ekki með hann í sérstakri gæslu. Það er þó full ástæða til að hafa góðar gætur á honum, því leikmenn eiga það oft til að skora gegn sínum gömlu félögum," sagði Bootroyd og bætti við að margir hefðu talið það hræðileg tíðindi fyrir félagið þegar Heiðar var seldur á sínum tíma. "Margir héldu hreinlega að liðið myndi falla þegar Heiðar fór en það sýndi sig eftir að hann fór að stundum er það bæði leikmanninum og félaginu til góða þegar maður af hans styrk fer frá félaginu. Heiðar var frábær leikmaður, traustur og yfir höfuð prýðisnáungi sem gaf alltaf allt sitt í leikina og það var frábært að vera með hann í liðinu. Hann er góður drengur og ég á ekki von á öðru en að hann geri fína hluti með Fulham," sagði Bootroyd.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Leiknir selur táning til Serbíu Íslenski boltinn „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Fleiri fréttir Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Sjá meira